Utan vallar: Þegar mektarfólk lætur sig kvennaíþróttir varða – Vísir

by birkir

5 comments
  1. > Áhrifamiklir einstaklingar á við Elon Musk, J.K. Rowling, Logan Paul og Richard Dawkins fóru mikinn á samfélagsmiðlum og fordæmdu það að „karlmanninum“ Khelif hafi verið hleypt í hringinn í kvennaíþrótt á stærsta sviðinu.
    >
    > Þær fullyrðingar eiga við engin rök að styðjast. Margur greip þær hins vegar á lofti og skyndilega var hálfur heimurinn orðinn sérfræðingur í litningafræðum og viss um að þarna væri karlmaður á ferðinni.

    >[…]

    >Nú, þegar áhrifafólk líkt og Musk og Rowling lét sig íþróttir kvenna loksins varða, voru það úthrópanir á fölskum grundvelli um jafnræði í keppni. Vegna meints óréttlætis sem var alls ekki til staðar.

    >[…]

    > Kynjamál verða áfram þrætuepli í íþróttum en færa má rök fyrir því að stærri vandamál sem hafa töluvert meiri áhrif á íþróttir kvenna verðskuldi fremur athygli. Launamunur kynjanna, munur á æfingaaðstöðu, kynjamunur á sýnileika og munurinn á tækifærum til íþróttaiðkunar milli kynja sem sýnir sig víða um heim.
    >
    > *Það má að minnsta kosti vona að það mektarfólk sem lætur sig nú varða ætlað misrétti innan íþrótta kvenna verði jafn ötulir talsmenn jafnréttis milli íþrótta karla og kvenna.*

  2. Allt þetta dæmi er svo afhjúpandi fyrir vonda fólkið á Íslandi. Nordic Masculinity / Brotkast menningarstríðsmönnunum, sem hafa undanfarið þóst berjast gegn kynbundnu ofbeldi (ef útlendingar fremja það) er nefninlega ekki svo annt um konur. Svona náungar eru alveg tilbúnir að níðast á einni konu frá Miðausturlöndum, til að koma höggi á transkonur þótt transkonur hafi ekkert með málið að gera.

  3. Eiga þær fullyrðingar við engin rök að styðjast já, er IBA, alþjóðlegu hnefaleikasamtökin sem sagt bara að bulla þegar þau banna þennan einstakling?

    Þessir vitleysingar sem starfa sem blaðamenn hjá vísi, launamunur kynjanna….brandari

Leave a Reply