Veg­far­endum stafi hætta af aug­lýsinga­skiltum – Vísir

by Vitringar

3 comments
  1. Þannig að bílstjórar mega horfa á skjái á meðan þeir keyra – svo lengi sem skjáirnir eru staðsettir utan við bílinn? 

    En án gríns, þetta er fullkomið dæmi um það þegar tækni tekur fram úr löggjöf. Þessi auglýsinga “skilti” eru bjartir, truflandi risaskjáir sem eru hannaðr af sérfræðingum til þess beinlínis að grípa athygli fólks. Þetta eru ekki lengur sakleysislegar tilkynningar, málaðar á krossvið. “Þér fáið gæðin in Völundi!”

    Tími kominn til að banna þetta í námunda við umferðargötur.

  2. Mér er ekkert sérstaklega annt um auglýsingaskilti, en eru einhver dæmi um slys vegna þeirra?

  3. Þessir risastóru björtu skjáir ættu að hverfa. Og virka auglýsingaskilti þegar flestar auglýsingar eru komnar á samfélagsmiðla? Ég hef persónulega aldrei litið á svona skilti og hugsað “ahh 50% afsláttur í byko, nice…..”. Væri gaman að vita hversu vel þessi auglýsingaskilti borga sig.

    Þau eru líka hræðileg ljósmengun. Á meðan ýmsar reglugerðir hafa verið settar um ljósastaura og lýsingu til að draga úr ljósmengun og spara orku, þá virðist þetta vera algjör andstæða. Sést varla í eina stjörnu í Reykjavík. Ég er forvitinn að vita hversu margir Reykvíkingar hafa einhverntíman séð Vetrarbrautina. Ég bý úti á landi og það verður alltaf erfiðara vegna uppbyggingar. Fer stundum út í sveit til að sjá. Það er fátt fallegra og 50% afsláttur í Byko er að ræna ykkur frá þessu (Byko bara dæmi, hef ekkert á móti þeim).

Leave a Reply