Það er svo mikill skandall hversu erfitt það er að komast í læknanám á Íslandi.
Það er fullt af nemendum sem eru hæfir í þetta starf. Það myndi svo mikið lagast við að það væri opnað almennilega fyrir aðgang í það.
Þvílíkt grín staða lækna á Íslandi, þurfa að annaðhvort boða til verkfalls eða einfaldlega segja upp á ríkisreknum stofnunum og selja vinnu sína sem verktakar.
Kemur ekkert á óvart að okkar besta fólk fer í grunnnám hér og lætur sig síðan hverfa til annara landa þar sem launakjör og starfsumhverfið er ekki í rúst.
Getur einhver útskýrt hvernig í ósköpunum læknar sætta sig við þetta starfsumhverfi verandi eins eftirsóttir og raun ber vitni?
Af hverju setja þeir ekki vinnuveitendum skilyrði? Af hverju semja þeir ekki um hærri laun? Af hverju segja þeir ekki “jájá, ég skal vinna hérna en stimpilklukkan verður tekinn niður”? Mín starfsstétt getur auðveldlega gert slíkt en við erum langt frá því að vera jafn eftirsóttir og mikilvægir og læknar.
Einhverntíman þegar við erum búin að taka til hjá okkur þá mun eitthvað fólk kannski reikna út kostnaðinn við að leika þessa hugmyndarfræðileiki með heilsu almennings. Ég veit ekki hvort hann verður reiknaður í krónum, mannslífum, ónýtum fjölskyldum, eða gróða einkageirans – en ég vona að það verði einhver skali, og einhver tala, sett á afleiðingarnar.
Það er svo súrt að fólk noti alvöru lífsins í eigin pólitíska hildarleiki. Við vitum öll að það er verið að hola heilbrigðiskerfið að innan – við erum bara ekki sammála um hvort það sé réttlætanlegt eða ekki. Við getum kannski átt betra samtal um þá réttlætingu þegar þessar tölur eru komnar. Þrír gaurar og erfingjar þeirra eignuðust nýjan einka-markað sem er margra miljarða virði – en á kostnað hvers?
4 comments