Hefur einhver hér góða útskýringu á þessari breyttu hegðun?

by snorrip90

13 comments
  1. Ég kenni COVID um að hluta til. Fólk vandist þessu þegar það var fast heima hjá sér í lengri tíma og hélt svo bara áfram þegar það fór aftur út á meðal fólks.

    Finnst þetta líka mjög dónalegt. Hef séð fólk tala um að þetta sé eitthvað kynslóðadæmi hjá unga fólkinu en ég sé þetta hjá fólki á öllum aldri þannig að ég er ekki að kaupa það.

  2. Er það ekki bara útaf því að það er verið að “skype-a” á messenger eða eitthvað slíkt?

  3. Þvi það hefur lesið hræðsluáróður að það að hafa símann upp að eyranu sendir einhverjar “hættulegar” 5G bylgjur inn í hausinn…

  4. Margir nota FB messenger til að hringja og nota videóið.

    Ég er old school og nota bara eyrun.

  5. Vegna þess að almenningur hefur á síðustu árum vanrækt skyldur sínar hvað varðar að skamma, smána, og almennt leggja í einelti þá sem haga sér á almannafæri á máta sem ekki telst samfélagslega viðeigandi.

    Ég vil meina að vanrækslan hófst þegar við leyfðum fólki að ganga um óáreitt á almannafæri í náttbuxum.

  6. Mér finnst stærra vandamál, og þetta hefur verið til staðar í alveg 10-15 ár, að fólk tekur símtal í miðju samtali við manneskju sem er í sama herbergi. Ef þetta er ekki barnið þitt eða makinn þinn þá hlýtur þetta að mega bíða í 4 mín.

  7. Þetta eru Kardashian áhrifin.

    Krakkarnir sjá þetta í raunveruleika sjónvarpi, snapchat, tiktok og þessháttar en gera sér ekki í grein fyrir að þar er þetta gert til að áhorfandi heyri einnig í viðmælanda en ekki því þetta sé kúl.

  8. Hljóðneminn er hálf bilaður. Allavega fyrir mína hálfu. En ég svara engum símtölum.

  9. Þau sáu það í raunveruleikaþáttum en föttuðu ekki að þar talar fólk alltaf í speaker svo myndavélin nái báðum hliðum samtalsins en herma samt eftir því því þau sáu það í sjónvarpinu.

    Ekki flóknara en það.

  10. Ég fer að svitna óþægilega á eyranu og kinninni eftir að tala í svona 2-3 mínútur. Nútímasímar eru ekki gerðir til að halda við eyrað.

  11. Ég byrjaði nýlega á þessu eftir að hafa lent í því tvisvar á tiltölulega stuttum tíma að tala mjög lengi í símann við ákveðna manneskju og enda með bæði hausverk og eymsli í handlegg og herðum. Ég hef komist að því að mér þykir þetta mun betra en að halda símanum upp að eyranu. En glætan að ég myndi gera þetta á almannafæri. Bara heima.

Leave a Reply