Áhugavert að skv þessu virðist meirihlutinn halda, fylgi Framsóknar færist bara yfir á Samfó og Viðreisn.
Greinilegt að eyðirmerkurganga Sjallanna í borginni ætlar að halda áfram m.v. þetta.
Sjálfstæðisflokkurinn er með bestu kosningarvél landsins, en er svo illa að sér í að vera í einhverskonar stjórnarandstöðu að flokkurinn virðist ekki geta fundið nein tól hérna í Reykjavík.
Þau sem þekkja til mín myndu strax kalla mig lygara ef ég segði að Sjallar gætu höfðað til mín og fengið atkvæðu mitt – en mér finnst samt eins og þeir ættu að geta höfðað til fleirri en færri undir eðlilegum kringumstæðum.
Sitjandi meirihluti í borginni hefur ekki staðið sig vel að mati fjölmargra, eiginlega flestra sem ég tala við. Það var ekki þannig þegar Dagur byrjaði sem borgarstjóri, og meira að segja þegar braggamálið kom upp var enn alveg happa-glappa hvort að fólk reiddist mér við að gagnrýna meirihlutan; en ég hef tekið eftir breytingu á þeim viðbrögðum seinustu árin. Einar vann náttúrulega seinustu kosningar af ástæðum og í raun hefur þessi sitjandi meirihluti mestmegnis dregið fylgi sitt frá því að “vera ekki sjálfstæðisflokkurinn”.
Og það hlítur að svíða. Besta kosningarvél á landinu, en þú hefur svo augljóslega ekkert fram að færa þessi besta kosningarvél í landinu getur ekki sigrað andstæðing sem bókstaflega hefur ekkert annað fram að færa en að vera ekki þú.
Svo er gaman að sjá að Sósíalistar eru að ná til fleirri með því að pönkast endlaust í aðgerðarleysi, og froðutillögum sitjandi meirihluta. Pínu uggvænt að sjá að Miðflokkurinn höfðar til jafn stór fylgis – hef ekki séð þá pönkast í neinum með völd.
Ég hef þá tilfinningu að Ríkisstjórnin verði hökkuð í spað í næstu kosningum. Veit xD dala oft á milli kosninga og taka svo við sér en það er bara það mikið í þjóðfélaginu sem gegnur það illa held að stemmingin fyrir meira af því sama sé alveg farin.
3 comments