https://www.mbl.is/ferdalog/frettir/2024/08/28/kaeruleysi_ad_blaa_lonid_se_enntha_opid/

Fór að pæla hvort að það sé einhver jarðfræðingur hérna inn á Iceland sem geti sagt mér hvort að eitthvað af þessu sem hann er að þylja upp gæti gerst í alvöru? Eru td miklar líkar á að það gjósi aftur nálægt Svartsengi eða mun þetta halda sig þar sem það er og færa sig norðar?

by ZenSven94

2 comments
  1. [hér á þessari mynd](https://i.imgur.com/eXOqAKX.png) er kortlagning yfir hreyfingar á sprungum, rauðar sprungur voru á hreyfingu í kringum 2021 og flestar sprungurnar voru óþekktar fyrir [þessa rannsókn](https://link.springer.com/article/10.1007/s00445-023-01699-0), umfjöllun hér hjá mbl.is frá því í janúar: [*Fleiri sprungur en áður var talið*](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/01/22/fleiri_sprungur_en_adur_var_talid/)

    [miðpunkturinn á landrisinu](https://i.imgur.com/NDyx0CL.jpeg) er svo gott sem beint undir Svartsengi, auðvitað gæti sprungureinin lengst í suður- og norðurátt – þetta er lifandi land

    en kvikan gæti líka fundið sér aðra leið upp og þá er alveg nærtækt að skoða næsta sprungna svæði sem er vestur af Svartsengi ef vel fer, eða undir Svartsengi sem er amk styttri leið og virðist vera vel sprungið svæði.

    svo það er ekkert óskynsamlegt af vísindamönnum að ráðleggja að Bláa lónið sé ekki smekkfullt af fólki þegar það er korter í eldgos. hvort eitthvað sé gert í því er væntanlega ákveðið af stjórn, væntanlega út frá áliti tryggingastærðfræðinga og lögfræðinga. sjá m.a. [2019 Whakaari / White Island eruption](https://en.wikipedia.org/wiki/2019_Whakaari_/_White_Island_eruption):

    >On 1 March 2024, Judge Thomas imposed a total of NZ$10.21 million in reparations and NZ$2 million in fines on the six defendants *Whakaari Management Limited*, *White Island Tours*, *Volcanic Air Safaris*, *Kahu Limited*, *Aerius*, and *GNS Science*.

    —-

    EDIT til að bæta við mikilvægu samhengi: er ekki jarðfræðingur, hef bara upplýsingar frá þeim og púsla því sem ég hef heyrt frá þeim svona saman í hausnum, framsetning er á minni ábyrgð en ekki þeirra

Leave a Reply