
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/10/okuskirteini_ekki_framleidd_fyrr_en_a_naesta_ari/
Ef maður er stöðvaður af lögreglu í umferðinni og beðinn um að sýna ökuskírteini, þá getur það skeð að lögreglan taki skírteinið og fari með í lögreglubílinn til að yfirfara einhver gögn.
Ef maður er eingöngu með stafrænt ökuskírteini, þarf maður þá að afhenda lögreglu símann sinn eða dugir þeim að sjá bara skírteinið?
by rabbabari1
4 comments
Þeir eiga að skanna ökuskírteinið með eigin síma til að staðfesta að þetta sé gilt ökuskírteini. Þessi virkni er í island.is appinu hjá öllum.
Það staðfestir að þetta er ekki eitthvað gamalt skjáskot
Dugar að sjá skírteinið, ef þeir vilja fara yfir gögn þá getur þú boðið þeim að skrifa niður númerið sem er á skírteininu í símanum og þeir þá leitað uppi upplýsingar með því númeri
Ég týndi ökuskírteininu mínu einu sinni í 6 ár, var alltaf með vegabréfið í bílnum og það dugaði alltaf. Það eru löggild skilríki og þeir flettu bara upp kt og ekkert ves.
Gangi ykkur vel að fá bílaleigubíl erlendis. Þetta er svo mikill aumingjaskapur að geta ekki prentað út þessi skírteini hérna. Meira að segja nemendafélög í litlum framhaldsskólum geta gefið út sín eigin plastkort.