
Vildi fá að vekja athygli á Karpinu, sem er nýtt vefrit með um 30 föstum pennum, og er tileinkað frjálslyndinu.
Hugsunin á bakvið það er að reyna að efla gæði umræðu um ýmis samfélagsleg málefni og að endurvekja stemninguna í kringum vefritin frá því fyrir um 15 árum síðan, þegar vefrit eins og Múrinn, Deiglan, Vefritið og fleiri voru vinsæl. Þá er einnig markmið að veita viðspyrnu gegn rísandi bylgu af þjóðernisíhaldshyggju sem hefur tröllriðið Evrópu og Bandaríkin, og er farin að skjóta upp kollinum hérlendis.
Pennarnir koma úr allskonar flokkum, og margir eru óflokksbundnir, og þá munu einstaka gestapennar einnig skrifa greinar fyrir Karpið, en fyrrverandi forsætisráðherra Þorsteinn Pálsson hefur m.a. skrifað grein fyrir Karpið nú þegar.
by logos123
1 comment
> og er tileinkað frjálslyndinu.
Æji, er verið að troða amerísku skilgreiningunni á Liberal til íslands ?