Arion banki hækkar vexti hressilega

by Pink_like_u

7 comments
  1. Þessi vaxtahækkun fer alfarið í að borga samkomulag (lesist sekt) við Seðlabankann vegna þess að þau geta ekki staðið við lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

    https://www.sedlabanki.is/utgefid-efni/frettir-og-tilkynningar/frettasafn/frett/2024/06/28/Samkomulag-Sedlabanka-Islands-vid-Arion-banka-hf.-um-ad-ljuka-med-satt-mali-vegna-brota-Arion-banka-gegn-logum-um-adgerdir-gegn-peningathvaetti-og-fjarmognun-hrydjuverka/

  2. Það er notabene tiltölulega einfalt að endurfjármagna lán og færa annað og því um að gera að skoða reglulega hvort það sé hagstætt að gera það, sérstaklega þegar vextirnir hækka. Kostnaðurinn er um 70-80þ en eitthvað meiri ef það er uppgreiðslugjald á gamla láninu.
    Ég hef allavega gert þetta reglulega síðustu ár og sparnaðurinn hefur verið mjög mikill.
    Svona sem dæmi þá er, skv. Aurbjorg.is, munurinn í dag á lægstu og hæstu föstu verðtryggðu vöxtunum 1,24% og fyrir 40mkr lán þýddi það 496þ á ári.
    Persónulega myndi ég samt taka óverðtryggða fasta vexti á 8,95% því uppgreiðslugjaldið er það lágt að ef vextirnir fara að lækka skarpt er ekki svo dýrt að borga það upp og taka nýtt.

  3. HaaA? Er ekki nóg hversu mikið þeir níðast á okkur þeir þurfa meira.
    Alræt takk.

  4. Ég skora á alla sem eru með slík lán að kynna sér í alvörunni hvaða kosti þau hafa til að endurfjármagna – og þá augljóslega í annari stofnun en hjá Arion. Ekkert annað norðurland myndi kokgleypa svona breytingu upp úr þurru hafandi aðra valkosti, heldur fara bara beint að skoða samkeppnisaðilana og ef betri kjör fæst þar, þá annað hvort: a) Prútta í núverandi banka (mun ekki virka á íslandi) b) Segja bara bless og fara með lánið annað.

    Til að setja þetta í smá samhengi. Ef þú ert með (dreg þetta bara upp úr hatti) með 30 m. kr. lán þá er þetta að fara þyngja þig um ca. 180 þús á ári. Sennilega talsvert meira þegar tekið er tillit til áhrif vaxtavaxta. Það kostar þér líklega ekki nema helminginn af þessu að endurfjármagna, þannig að sparnaðurinn kemur fram á fyrsta ári.

    Ef þau hafa frelsið til að hækka kostnaðinn þinn, þá skaltu endilega muna að þú hefur frelsið þitt til að hætta að vera viðskiptavinur þeirra. Ef hann er ekki nýttur þá einfaldlega hefur maður mjög takmarkaðan rétt til að kvarta. Þá getum við öll alveg eins bara steinþegið og sætt okkur við þetta.

  5. Allir bankarnir munu fylgja fyrir áramót þar sem bankarnir munu þá þurfa að eiga 4% af öllum lánum sem þeir gega út í stað 2%. Arion banki er bara fyrstur…

Leave a Reply