
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2024/09/13/islandsbanki_haekkar_vexti/
Nú spyr ég bara afhverju hækka vextir á verðtryggð lán, en lækka á óverðtryggðum?
Eru einhver rök fyrir því?
by retkne

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2024/09/13/islandsbanki_haekkar_vexti/
Nú spyr ég bara afhverju hækka vextir á verðtryggð lán, en lækka á óverðtryggðum?
Eru einhver rök fyrir því?
by retkne
3 comments
Mjög einfalt svar í rauninni. Vextir hjá fólki með óverðtryggð lán eru að losna þannig að margir flýja yfir í verðtryggð, þannig að þeir sjá sér leik á borði og hækka vextina á verðtryggðum lánum til að græða meira. Er farinn að finna fyrir meiri og meiri fyrirlitningu á svona jakkalökkum eftir því sem ég eldist…
Grilla á daginn og græða á kvöldin, eða var það öfugt? Má vera komma á undan eða, eða?
Ef þú vilt alvöru svar frekar en “bankar vondir” rúnk:
Vextir verðtryggðra lána eru í grundvallaratriðum summa:
* Raunfjármögnunarkostnaðar banka (þeir taka lán og lána svo þér).
* Áhættuálag (meiri áhætta að lána mér heldur en banka).
* Þóknunarálag (bankinn tekur eitthvað fyrir þetta allt saman).
Vaxtastig óverðtryggðra lána er allt þetta sama plús:
* Verðbólguvæntingar.
Raun-fjármögnunarkostnaður banka er að hækka (svo vaxtastig verðtryggðra lána hækkar) en verðbólguvæntingar eru að lækka meira (svo vaxtastig óverðtryggðra lána lækkar).