Bjarni segir brottvísunina standa – Vísir

by No_nukes_at_all

10 comments
  1. Hef ekki hingað til verið mikill “fokk Bjarni Ben” maður, en nú segi ég það innilega:

    Fokk Bjarni Ben.

  2. > „Það sem okkur munar um er að það séu reglur sem eiga að gilda um alla. Það er algert grundvallaratriði,“ segir Bjarni

    Gott að vita það Bjarni. Alveg eins og grímuskylda og reglur um fólksfjölda áttu að gilda um alla, nema þig. Eins og bankalög sem leyfa ekki sölu á ríkiseignum til fjölskyldumeðlima, en gilda ekki um þig og pabba þinn.

    Allskonar lög og reglur sem virðist vera hægt að beygja, brjóta eða fara á svig við þegar það á við um hann og kumpána.

    Þessi durgur er rotinn inn að merg.

  3. Brottvísun til Spánar, flott land…. ekki eins og það sé verið að senda þau til austur Úkraínu eða aftur til Palestínu. Fyrir það fyrsta, hvað voru foreldrarnir að spá að fara með veikan dreng frá fyrsta heims ríkinu Spáni alla leið til Íslands?

  4. Fyrir löngu fannst einhverjum geðveikt sniðug hugmynd að hætta að hengja fólk fyrir landráð og hér erum við.

  5. Þetta virðist svolítið svakalegt, margt það sem haft er eftir forystufólki stjórnarflokkanna stangast eiginlega á bara alveg hægri vinstri.

  6. Ok þarna er komið málið sem að fólk er tilbúið að gera að kosningamáli og sprengja stjórnina útaf, innflytjendur.

    Bjarni vonar að það dragi miðflokkssjallanna heim að vera harður og Guðmundur vonar að það að mótmæla kerfinu ýti VG yfir 5%.

    Held að hvorugur fái það sem hann vill.

  7. Mér finnst, og í raun alveg óháð því hvoru megin maður er í þessum málaflokki almennt eða í máli Yazans sérstaklega, að þá eru svör allra ráðherra sem áttu í hlut hér hreinlega fyrir neðan allar hellur.

    Guðmundur: Ég vil skoða þetta betur. (Við höfum samt haft rúmlega ár til þess að skoða þetta vel)

    Bjarni: Lögin eiga að gilda fyrir alla. Við urðum samt við beiðninni.

    Guðrún: Ég hef í raun ekki lagaheimild til þess en gerði það samt. Ákvörðunin stendur þó enn. ???

    … ég meina …. út á hvað gengur þetta leikrit eiginlega? Hverjum nákvæmlega hjálpar það að fresta með tilheyrandi raski, skorti á fyrirsjáanleika og (að mér heyrist, en ég var þarna þó ekki) óþarflega harkalegum vinnubrögðum lögreglu. Annað hvort ætti að fresta/hætta við með því að leiðarljósi að senda þau ekkert út aftur yfirhöfuð, og ef ekki þá ætti einfaldlega að senda þau út svo þau geta nú byrjað að lifa lífinu sínu. Þetta millibilsástand þjónar nákvæmlega engum og er rosalega erfitt að verja, hlustið bara á málflutning ráðherra hérna, þetta er náttúrlega bara steypa.

  8. Það er kominn tími á nýja ríkisstjórn. Við eigum ekki líða þessa vitleysu og mafíubrask sem leyfir glæpamönnum að flytja til landsins eins og ekkert sé enn hendir fjölskyldufólki og þeim sem reyna sitt besta til að aðlagast íslensku samfélagi úr landi

Leave a Reply