Sæl samlandar

Ég er enn að bíða eftir HBO Max.

En þangað til langar mig að vita hvaða efnisveitur eru eiginlega að bjóða upp á sæmilegt efni fyrir Íslendinga (sem vilja ekki nota VPN), og þá hvaða efni stendur uppúr?

Einnig, hvað vantar? Er Apple TV enn óaðgengilegt? Ég dýrka þættina sem hafa komið þangað, Ted Lasso (⭐ 8,8), Severance (⭐ 8,7), Lessons in Chemistry (⭐ 8,2), Dark Matter (⭐ 7,7), Silo (⭐ 8,1), Presumed Innocent (⭐ 7,7), flest annað þarna er á áhorfslistanum en hef ekki enn komist yfir.

Er Netflix og Disney+ jafn hreyfingarlaust í dag og það var þegar ég hætti að nota það? Er eitthvað varið í Paramount+ (ef það er þá aðgengilegt)? Hvað með íslensku streymisveiturnar, er ég að missa af einhverju þar?

Í stuttu máli þá langar mig að helst bara að vita hvað þið hafið verið að glápa á og líkað vel við.

by birkir

2 comments
  1. Hmmm, sko…

    Erum með Netflix (~2900 kr/mán), Disney+ (~1800 kr/mán) og Prime Video (~1100 kr/mán) á mínum bæ og heimilið samanstendur af nördum á aldrinum 12-44 ára (og einn eins árs).

    Eins og staðan er í dag, er Disney+ mest notað – halló Shogun, nostalgíu hámhorf á Buffy og Firefly, allt Marvel (líka ó-disneylegi Deadpool) og Star Wars sem dugar manni fram að aldamótum. Koma líka góðar stórmyndin þangað (Yorgos Lanthimos myndirnar t.d.) og detta inn einstaka seríur sem koma á óvart (Murder at the end of the world). Eins býr allt AHS þar. Persónulega fannst mér Dopesick, sem er þar, vera betra en Painkiller, sem er á Netflix.

    Á Prime eru Wheel of Time, Rings of Power (og allt annað lotr) og Boys (+spinoff) sem er kannski ekki mikið, en prime kostar líka klink.

    Netflix er svo hit and miss. Klassískar hámhorfsseríur koma og fara og það detta alveg inn góðar seríur (Black Mirror er súper) og bíómyndir, en það er svo mikið af meh dóti þarna, og notendaviðmótið þess eðlis að það er pínu eins og að gramsa á nytjamarkaði að reyna að finna sér eitthvað að horfa á. Þessi 12 ára notar Netflix samt mest (Dragon Prince og is it Cake).

    Mér finnst Netflix í það dýrasta, svo þú getur ímyndað þér hvað mér finnst um íslenskar streymisveitur.

  2. Löngu hættur að nenna að eltast við þessar streymisveitur. Er bara með netflix, torrent og svo plex fyrir rest 🙃

Leave a Reply