Skilaboð frá manninum sem neitar að draga úr ríkisútgjöldum

by Serious-Shopping3869

4 comments
  1. Getum við sleppt því að ráða smábörn í leiðtogastöður í næstu kosningum?

    Við verðum að fá leiðtoga sem kunna að taka ábyrgð á eigin verkum, af því sú ábyrgðartilfinning mun kvetja þá ráðherra til dáða á meðan þessi barnaskapur kvetur ráðherra til að gera bara ekki rassgat og kenna síðan okkur hinum um afleiðingar þess.

    Fyrir næstum fjórum árum kom upp fræga spurningin *”Afhverju ekki Framsókn”* og hérna er svarið við því – Framsókn er hópur framapotara sem fengu ekki pláss í Sjálfstæðisflokknum. Atkvæði til Framsóknar er atkvæði til tækifærissina sem Sjallar geta ekki fundið not fyrir.

  2. Maðurinn er svo gjörsamlega aftengdur raunveruleikanum að það er ekki fyndið lengur,

    *”Það er í DNA Íslendinga að sætta sig við hækkandi verðbólgu”* Bíttu í þig Siggi

  3. Í hvert skipti sem Sigurður Ingi tjáir sig þá missi ég meira álit á honum. Þvílíkur heigull.

  4. Ríkisstjórnin sem að stjórnar efnahagsmálum og fjármálum ríkisins biður fólk um að hætta að kenna þeim um efnahagsástand ríkisins.

    Þetta er svo mikið vanhæfnisvæl að það hálfa væri eiginlega of mikið.

Leave a Reply