Þessi björn hefur eflaust ekkert borðað í mjög langan tíma. Þeir veiða eingöngu á hafís og yfir sumartímann svelta þeir sig í svokölluðu “Walking hibernation”. Þeir eru hættulegastir á þessum tíma. Tækifæris bráð er eina sem heldur þeim gangandi.
Ég vissi að það myndi koma í bakið á okkur að kjósa ekki Jón Gnarr sem forseta.
Staðfesting á að þetta sumar er búið að vera ömurlegt,,, veðurlega.
> **Tilkynning um hvítabjörn.**
>
> Nú fyrir skömmu síðan fékk lögreglan tilkynningu um að hvítabjörn hafi gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum.
>
> Lögreglan á Vestfjörðum hefur, að höfðu samráði við Umhverfisstofnun, kallað út þyrlu LHG ásamt því að björgunarbáturinn Kobbi Láka er nú þegar farinn af stað með tvo lögreglumenn frá Ísafirði.
>
> Ætlunin er að tryggja öryggi þess fólks sem kann að vera á svæðinu.
>
> Fólk sem er á svæðinu er hvatt til þess að halda sig innandyra og hafa varann á sér þar til lögreglan gefur út frekari tilkynningar.
>
> Lögreglan mun senda frá sér tilkynningu um framvindu málsins.
>Ábending barst frá einstaklingi sem dvaldi í sumarhúsi um að hvítbjörn hefði gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum í dag.
>Aðspurður segir hann íbúa hafi tilkynnt um björn sem hafi sést nálægt byggð. Á svæðinu séu ekki margir á ferli en lítil sumarhúsabyggð er þar.
>Sá sem tilkynnti um að hvítabjörn hefði gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum var staddur í sumarhúsi á svæðinu, og er einn eftir því sem lögregla kemst næst. Ekki hefur náðst aftur í viðkomandi. Lögreglumenn eru á leið á svæðið ásamt mönnum frá Landhelgisgæslunni sem eru sérþjálfaðir í meðferð skotvopna.
>Tveir lögreglumenn frá Ísafirði hafa verið sendir á svæðið með bolvískum björgunarbáti, auk þess sem sérþjálfaðir menn eru á leið á vettvang með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þeir eru, líkt og lögreglumennirnir, vopnaðir og við öllu búnir að sögn Helga.
>Hann segir ekki ljóst á þessari stundu hvort sá sem tilkynnti um dýrið, né aðrir, séu í bráðri hættu.
4 comments

[Lögreglan á Vestfjörðum](https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=pfbid02fzBnNUgWHT97p73KtqvPgAZ8kSavwF7Cejes45HpFnNB1XPuHPxZDXyz4BBiDfArl) 14:13:
> **Tilkynning um hvítabjörn.**
>
> Nú fyrir skömmu síðan fékk lögreglan tilkynningu um að hvítabjörn hafi gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum.
>
> Lögreglan á Vestfjörðum hefur, að höfðu samráði við Umhverfisstofnun, kallað út þyrlu LHG ásamt því að björgunarbáturinn Kobbi Láka er nú þegar farinn af stað með tvo lögreglumenn frá Ísafirði.
>
> Ætlunin er að tryggja öryggi þess fólks sem kann að vera á svæðinu.
>
> Fólk sem er á svæðinu er hvatt til þess að halda sig innandyra og hafa varann á sér þar til lögreglan gefur út frekari tilkynningar.
>
> Lögreglan mun senda frá sér tilkynningu um framvindu málsins.
—
[RÚV](https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2024-09-19-hvitabjorn-sast-a-hofdastrond-i-jokulfjordum-422181) 14:18 – *Hvítabjörn sást á Höfðaströnd í Jökulfjörðum*
[mbl.is](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/19/vidbunadur_vegna_tilkynningar_um_hvitabjorn/) 14:22 – *Viðbúnaður vegna tilkynningar um hvítabjörn*
[Vísir](https://www.visir.is/g/20242623501d/tilkynnt-um-isbjorn-og-thyrla-gaeslunnar-raest-ut) 14:26 – *Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út*
—
mbl.is 14:59 – [Björninn sagður nálægt byggð](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/19/bjorninn_sagdur_nalaegt_byggd/)
>Ábending barst frá einstaklingi sem dvaldi í sumarhúsi um að hvítbjörn hefði gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum í dag.
>Aðspurður segir hann íbúa hafi tilkynnt um björn sem hafi sést nálægt byggð. Á svæðinu séu ekki margir á ferli en lítil sumarhúsabyggð er þar.
visir.is 14:59 – [Senda vopnaða menn á svæðið](https://www.visir.is/g/20242623521d/senda-vopnada-menn-a-svaedid)