(sjá tvær slóðir neðst)

Ég rakst á frétt frá 2016 sem mér fannst áhugaverð, sérstaklega í ljósi þess að maðurinn á myndinni, Sigmundur Davíð, bauð þá viðkvæmum hópum, eins og flóttafólki, hingað til lands. Nú, nokkrum árum síðar, notar hann þessa sömu hópa sem blóraböggla og pólitískt vopn, og kennir þeim um ástand innviða landsins. Það er kaldhæðnislegt að maður sem áður lagði áherslu á mannúð og hjálparstarf, kyndir nú undir ótta og tortryggni gagnvart þessum sömu hópum sem hann bauð til landsins.

Með því að ala á þessum ótta hefur Sigmundur reynt að beina athyglinni frá eigin hneykslismálum, eins og Panama-skjölunum og Klaustursmálinu. Þrátt fyrir að hafa áður stutt alþjóðlegt hjálparstarf fyrir fólk sem flúði átök, styður hann nú pólitíska stefnu sem beinist gegn flóttafólki. Þetta endurspeglar ákveðna hræsni og sýnir hvernig popúlismi getur verið skaðlegur. Óttinn er notaður til að sundra samfélögum, frekar en að leita raunverulegra lausna.

Það sem gerir þetta enn kaldhæðnislegra er að á meðan hann gagnrýnir flóttamenn, hefur Rússland sjálft notað flóttafólk sem pólitískt vopn til að veikja Evrópusambandið og Vesturlönd, sérstaklega árið 2015 þegar flóttamannastraumurinn var hvað mestur. Vesturlönd hafa einnig, með hernaðaríhlutunum í sumum löndum, stuðlað að því að fólk neyðist til að flýja. Sigmundur virðist horfa framhjá þessu samhengi þegar hann nýtir flóttafólk í pólitískum tilgangi.

Popúlískir stjórnmálamenn eru eitur fyrir samfélög og heiminn

https://www.visir.is/g/20161580625d/islensk-stjornvold-leggja-til-halfan-milljard-vegna-astandsins-i-syrlandi

https://www.visir.is/g/2015150918612

by numix90

6 comments
  1. > fjármagnið yrði notað til þess að setja up skóla í nágrannalöndum [Sýrlands] auk þess sem íbúar Sýrlands myndi fá lífsnauðsynjar á borð við mat og lyf

    Hvar kemur fram að hann hafi boðið einhverjum til Íslands?

    Er þetta ekki vitlaus frétt.

  2. Hann hefur auðvitað ekki svo mikla sérstaka stefnu nema bara að halda þessu þæginlega starfi þar sem hann þarf lítið sem ekkert að vinna. Svo notar hann bara það sem hann heldur að virki hverju sinni til að fá atkvæðin sem hann þarf til að haldast inni. Á þessum tíma var kúl að styðja sýrlenska flóttamenn, fyrir stuttu síðan voru það úkraínskir flóttamenn, en núna heldur hann á önnur mið að veiða önnur atkvæði.

    Greyjið maðurinn fengi í rauninni enga aðra vinnu. Ef þú værir með fyrirtækjarekstur, myndiru ráða hann? Að þessu leiti eru stjórnmálaflokkarnir bara eitthvað vinnuframtak á vegum ríkisins fyrir útjankaða menntaskólakappræðustráka.

  3. Hann er svo löngu búinn að missa allan trúverðugleika. Vel gert að benda á þetta en ég meina. Ef einhver hugsar að hann eigi eitthvað heima í pólitík. Þá efast ég um að sá hinn sami hlusti á einhver rök.

  4. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur engan áhuga á að vinna fyrir þjóðina. Höfum það á hreinu að allt sem hann gerir hefur þann tilgang að bæta hag Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

  5. Afhverju heldurðu að enginn á þingi vilji vinna með honum í ríkisstjórn?

    Hann skiptir um skoðanir oftar en nærbuxur og hagar þeim alfarið eftir því hvað er vinsælt þá stundina.

  6. Þetta virðist að mestu fjalla um mannúðaraðstoð í stríðshrjáðum löndum þó seinni greinin nefni að hluti þess fjármagns fari í móttöku flóttafólks og aðstoð við aðlögun þeirra.

    Hann hefur aldrei beinlínis talað gegn flóttamönnum, hans málflutningur hefur verið gagnrýnin á fjölda þeirra á stuttum og hvernig aðlögun hefur ekki tekist nógu vel, hvorki hér né annar staðar í Evrópu.

    Þessi málaflokkur hefur tekið talsverðum breytingum síðan 2016. Ég veit ekki hvort það sé endilega rétt að tala um hræsni. Hann vildi aðstoða Sýrland, ég held það hafi allir verið örlítið bláeygðir varðandi hversu auðveldlega væri hægt að leysa það ástand.

Leave a Reply