
Hvað finnst ykkur um svona ummæli eins og höfð eru eftir Hönnu Katrínu?
Persónulega finnst mér ömurlegt hvernig það er samfélagslega viðurkennt að það sé í lagi að tala niður til annarra eingöngu á grundvelli þess að viðkomandi er karl. Hanna Katrín smættar alla reynslu Jóns (borgarstjóri, leikari, framleiðandi, rithöfundur…) og lætur eins og kynferði hans – það að hann sé karlmaður – sé það eina sem skýrir það að hann vilji hafa áhrif innan Viðreisnar. Frekar þreytt.
En maður er kannski að gera of miklar kröfur. Viðreisn er ekki flokkur sem er þekkt fyrir mjög gagnrýna hugsun.
by Hrutalykt
9 comments
Ömurleg ummæli. Fannst hún oftast mjög málefnanleg
Hún er að vísa í þá innanflokksdeilu á sínum tíma þegar Benedikt áskildi sér oddvita sæti og hrökklaðist frá flokknum þegar það var síðan raðað á lista og hann látinn víkja fyrir sitjandi þingmanni.
Það á hvorki að tala illa um einstakling út af því að hún er kona eða hann sé karl. Það er auðvelt að snúa þessum ummælum við og sýna þannig fram á hræsnina. En eigum við virkilega að þurfa að stafa þetta út? Þetta eru tveir pólítikusar, þau eiga að geta fundið betri og málefnalegri árasir en kyn. Mjög ósmekklegt.
Já smá karlremba en það hefur lengi þótt kúl að láta svona. Thatcher er algjört íhaldslegend og ein frægasta setning hennar er einmitt niðrandi um karlmenn.
En hvaða meðbyr er hún að tala um? Er það koma Jóns í flokkinn því viðreisn hefur verið í sínum 7-10% árum saman.
Vandamálið við litla flokka er einmitt að það er ekkert backbench, engin grasrót, engir vaxtamöguleikar. Einhver á upp/innleið yrði alltaf að taka sæti frá einhverjum á toppnum, sem hafa hvata til að stöðva það áður en það safnar skriðþunga. Sjáum nkl sama uppi á tengingum í Pírötum um daginn.
Ef að þetta eru móttökurnar sem hann fær þá held ég að flokkurinn sé að vanmeta hversu mörg atkvæði fylgi honum. Atkvæði sem að færu líklega annars í VG, Pírata eða Samfylkinguna – eða einfaldlega eru ekki nýtt. Atkvæði ungs fólks sem hefur enga sérstaka pólitíska hollustu, en væri meira en litið til í að styðja við skynsaman mann með fimm háskólagráður.
Hvað varðar ummælin sjálf finnst mér svosem ekkert athugavert við þau. Þetta er ekki fyrsta kerlingin sem vælir yfir því að einhver dirfist að viðra metnað sinn.
Ég er aðdáandi Jóns – kaus hann í sumar – mér fannst hans orð asnslegri
Ég skil ekki hvernig Jón nennir þessu, leiðindin strax byrjuð og þau eru frá hans eigin flokki áður en hann fær sæti.
Eiga rétt á sér.
Hann kemur fram með frekar mikill óvirðingu.
Hann er nýbúinn í forsetaframboði og ætlar núna aftur í beinu stjórnmálin, en hálfpartinn eins og hann viti ekki hvað hann vilji.
Hann labbar bara inn á gólf Viðreisnar og segir “hér er ég og hvað getið þið gert fyrir mig”. Flokkurinn er með stefnumál og agenda sem Jón er varla byrjaður að kynna sér og hann er voðalega kokhraustur og segist vonast til að taka kosningarnar frekar auðveldlega.
Það segir mér að hann hafi hvorki trú á fólkinu í baráttusætunum né málefnunum sem Viðreisn stemdur fyrir, það er eins og hann hafi bara vantað platform fyrir SIG