
Danir eiga engan rétt á því að ákvarða skilin við "langtímalán", þetta er ekki þeirra til að lána. Svo væri gott ef fornmunirnir fylgdu með en ekkert er á þá minnst.
Krakkar, munið að fylgjast með hvenær skiladagsetningin er og svo athuga hvort sú ríkisstjórn sem verður þá ætli sér að skila þessu. Ef hún ætlar að skila þessu þá er kominn tími á byltingu.
Ég veit að þetta á að vera krúttlegt, við eigum að þakka gömlum yfirboðurum okkar fyrir að vera svo almennileg að lána okkur eigin eignir en ég tek ekki þátt í svona skrípaleik.
Svo er frá Dönum séð sérkennilegt að vera með handrit sem þeir hafa ekkert við að gera né ástæðu til að halda í og hugsa: "Hey þessir Íslendingar vilja þetta, kannski ættum við að skila þessu… Nei það gengur ekki, við losnum við þetta en látum þá skrifa undir lánasamning! Múhahahahaha Danebrogen øver alt!"
by Fyllikall
2 comments
Svo kunna þeir ekki einu sinni að lesa
Það er eitt mjög mikilvægt í þessari umræðu. Danir eru mjög góðir í forvörslu. Íslendingar hafa verið að byggja upp aukna getu, en því miður eigum við enn erfitt með að varðveita fornminjar okkar með réttum hætti.
Ég er sammála þvi að þeir hafa engan rétt og handritin eru okkar, en það þarf að tryggja aðstæðurnar sem við geymum gripina í.
Það þarf að fjármagna forvörslu Þjóðminjasafnsins samhliða því að við fáum þessa dýrgripi heim