
Heil og sæl öllsömul á r/Iceland
Við sláumst í för með öðrum subredditum og sýnum Úkraínu stuðning í bæði verki og merkjum og skiptum út okkar látlausu skreytingum út fyrir fána Úkraínu.
Við, moddarnir á r/Iceland styðjum við fólkið í Úkraínu og vonumst eftir friði sem fyrst á svæðinu
Hér fyrir neðan eru hlekkir á söfnunarsíður fyrir þá sem vilja ekki standa aðgerðalausir.
[Hospitaliers](https://www.facebook.com/hospitallers/) Sjúkraflutninga fólk á vígstöðum.
[Lengri listi af söfnunar síðum](https://old.reddit.com/user/Tetizeraz/comments/t0tg8p/list_of_subreddits_supporting_ukraine_links_to/)
Rauði Kross Íslands hefur stofnað til neyðarsöfnunar fyrir íbúa Úkraínu.
Hægt er að styrkja söfnunina með eftirtölldum leiðum:
* SMS: Senda HJALP í símanúmerið 1900 (2.900 kr.)
* Aur: raudikrossinn eða 1235704000
* Kass: raudikrossinn eða 7783609
* Söfnunarreikningur Rauða krossins: 0342-26-12, kt. 530269-2649
Auk þess er hægt að lesa meira um söfnunina á heimasíðu [Rauða krossins](https://www.raudikrossinn.is/styrkja/styrkja-starfid/?fbclid=IwAR1AAJHzI8KzJczYWRNLcVssKJmjeE5ywxapPB7Hi5P_xrCjLlEUU_Cu3Bc)
Þar með sagt:
– **Við erum ekki að gefa grænt ljós á heiftur eða hatursorðræðu gegn Rússum** –
– **Engin af okkur óskar eftir frekari skálmöld eða ófriði** – Ef eitthvað, þá er okkar heitasta ósk að allir aðilar komi saman og leysi sínar deilur á siðmenntaðan hátt. Við erum ekki að óska eftir frekari blóðsúthellingum hér né annars staðar.
3 comments
Ekkert að Rússum og örugglega mjög margir þeirra á móti stríðinu. Aðrir örugglega vel þvegnir af ríkisáróðri. Að því sögðu – þá vona ég innilega að Pútín fái ebólu og deyji hægum og sársaukafullum dauða.
[removed]
[Svo](https://www.visir.is/g/20222227887d/uti-lokar-ekki-ad-slita-stjorn-mala-sam-bandi-vid-russa) veit einhver um undirskriftalista eða eitthvað til stuðninga því að slíta stjórnmálasambandi við Rússland?