>Deilan hefur staðið lengi en á sínum tíma reistu eigendur húsa við Einimel 22 til 26 girðingu við lóðir sínar sem ganga að verulegu leyti inn á almannarými.
Lausn borgarstjórnar:
>Fulltrúar Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Pírata, sem eru þau Pawel Bartoszek, Alexandra Briem og Hjálmar Sveinsson, lögðu fram bókun: „Með þessari breytingu þá stækkar túnið miðað við raunverulega stöðu seinustu áratuga. Töluverðar deilur hafa staðið um girðingar og lóðarmörk á svæðinu og er deiliskipulagstillagan er niðurstaða sátta í þeirri deilu. Ánægjulegt er að sú sátt sé að nást.“
Einn íbúðana sem stækkuðu lóð sína (Einar Örn Ólafsson, fjárfestir og fyrrverandi forstjóri Skeljungs):
> „Sú [girðing] sem fyrir var, var ónýt og þurfti að endurnýja og við ákváðum að færa hana út fyrir trén, á að giska 2 metra. Sú færsla stækkar garða okkar auðvitað ekkert, en við gerðum þetta því svæðið undir trjánum var jafnan í mikilli órækt, borgin sló grasið að trjánum en svæðið undir trjánum var ekki hirt og fullt af arfa og hundaskít,“
Viðbrögð Vesturbæinga:
> „Kannski maður girði bara part af næsta almenningsgarði og eigni sér hann. Aldrei að vita nema maður fái bara að halda honum ef maður þrjóskast nógu lengi við.“
> „Með því að minnka túnið við Vesturbæjarlaug stækkar það!!!! Þetta hlýtur að vera heimsmet í rökfræði.“
> „Ef þetta gengur eftir þá gefur þetta fordæmi og ekkert því til fyrirstöðu fyrir fólk að stækka lóðir hjá sér með einfaldri landtöku.“
Afsakið, en þetta er bara ekki rétt, ég sat fundinn og spurði vel út í þetta mál til að vera viss.
Það er ekki þannig að fólk sé að fá þetta svæði til sín sem það girti af. Það er númer eitt.
Girðingarnar verða teknar niður og landinu skilað.
Það var farið í nýja landmælingu við vinnslu þessa máls. Þar kom í ljós að lóðirnar áttu að vera enn minni en upphaflega var talið, og ná skemur en út að upphaflegri girðingu.
Það náðist hins vegar samkomulag um það að stækka lóðirnar þannig að þær stemmdu við upphaflegan skilning á þeim, og væru í línu við hinar lóðirnar í sömu götu sem ekki færðu sig utar, en taka jafnframt niður girðinguna sem hafði verið reist og skila því landi.
Einhverjum kann að finnast að það hefði átt að halda allri minnkuninni til streitu. Og kannski hefði það verið hægt. En mér hefði þótt það ósanngjarnt á móti, þessi lína sem nú er verið að samþykkja er í línu við hinar lóðirnar og í samræmi við upphaflegan skilning kaupenda. Það hefði aldrei orðið sátt um að ganga innar en það og hefði örugglega endað fyrir dómstólum, sem er alls ekki víst að hefðu samþykkt það, og hefðu getað ákveðið að hefðarréttur hefði myndast fyrir stærra svæði.
Það hefði líka getað skapað óvissu um hinar lóðirnar í götunni, sem færðu sig ekki utar, og það hefði líka verið ósanngjarnt.
Svona lýkur málinu strax í sátt, og lóðirnar eru allar í sömu línu upphaflegur skilningur gerði ráð fyrir.
2 comments
TLDR:
Deilan:

Ég held það sé bara ágæt lausn.