Er ég sá eini sem kallar “Bugles” grílufingur? Var í partýi og það var horft á mig stórum undrandi augum þegar ég kallaði “Bugles” grílufingur. Ég hef kallað þetta grílufingur alla ævi. Ég er frá Ísafirði ef það hjálpar

14 comments
  1. Nei, en mun klárlega kenna börnunum mínum að kalla bugles grýlufingur
    Besta nafn á snakki sem ég hef nokkru sinni heyrt 😀

  2. stundum kallaði maður þetta grýluneglur, en það ver eitthvað sem kom af sjálfu sér.

    merkilegt að puttarnir á manni hafi einusinni komist inn í þetta.

  3. Er ættaður að vestan og kallaði þetta alltaf nornahatta en efast um að það sé einhver tenging þar á milli. Kalla þetta Böggles eða Böggúls í dag eftir að hafa gengið í gegnum sama pakka og þú.

Leave a Reply