
Ég keypti mér drullusokk um daginn sem er algjört drasl. Er einhver hér sem getur bent mér á verslun sem selur almennilega drullusokka til að losa klósettstíflur en ekki þetta rauða drasl með tréhaldi sem allir selja og virkar ekki skít.
Ég er þá að meina einhvern [svona](https://encrypted-tbn0.gstatic.com/images?q=tbn:ANd9GcRsZxhn_hD2503Pp2B4UgNFPPzk7kEiENsMVQ&usqp=CAU)
8 comments
Þessi verslun [hérna](https://www.google.com/maps/place/Valh%C3%B6ll/@64.1387154,-21.8977822,17z/data=!3m1!4b1!4m5!3m4!1s0x48d674b85d90f867:0x63e3633750de9734!8m2!3d64.1387154!4d-21.8955935) er með fullt af drullusokkum
Hef sjálfur verið að leita að svona drullusokkum, þessi gerð af þeim virðist vera vandfundinn enn allt fullt af “öðrum gerðum”… 😛
Starfaði á tíma í hóteli og eitt af mínum störfum var að hreinsa klósett reglulega eftir að ferðamenn sturtuðu niður öllum andskotanum. Var betra að nota stórann ruslapoka til að opna stýflur heldur enn þessa drullusokka sem er verið að selja.
Þessir rauðu eru fyrir vaska og bað, ekki klósett. Hef hins vegar ekki hugmynd um af hverju alvöru klósett drullusokkar eru ekki seldir á fleiri stöðum.
Þessir bláu í Valhöll geta losað um hvaða drullu sem er
Ef þú ert að reyna losa klósettstíflu þá er best að nota klósettburstann. Ferð mjög hratt með hann upp og niður í klósettvatninu þannig að það myndist sog og þá fer stíflan oftast.
Ég hef aldrei séð svona í búð á íslandi… og ég vann einu sinni í verslun sem að seldi hina gerðina af drullusokkum.
Skil ekki af hverju þetta hefur aldrei náð sér á strik hér á landi, þessir “hefðbundnu” virka ekki sérstaklega vel á klósett.
Barion?
Ég gerði líka þessi mistök og keypti fyrir vaska. Ég myndi prófa að fara í Bauhaus.