
Sæl(l)
Er “Helvítis fokking fokk!” ekki nóg? Þarf að láta þá heyra það óþvegið? Er þinn innri Indriði að bugast og þú barasta verður að fá smá útrás? Finnst þér eins og allt sem þú segir hverfi út í tómið?
Þú ert á réttum stað, Láttu það flakka, vertu berskjaldaður/skjölduð í smá stund, losaðu þig við þennan óþverra.
​
Hugmyndin er að fólk fái stað til útrásar í þeirri von um að stuðla að betra almennara geðheilbrigði. Erfitt getur reynst að lesa í tónin hjá fólki í bundnu máli en við skulum ganga út frá því að hér séu fáir komnir til að rífast.
​
—
Ef þig vantar að fá einhvern til að hlusta á þig ekki á opinberum vettvangi þá er alveg sjálfsagt að hafa samband við: u/kassetta, (Hér bætast við fleiri nöfn ef fólk biður sig fram)
Þar með sagt þá viljum við benda á að ef allt stefnir í strand þá er gott ráð að hafa samband við:
Pieta samtökin S: 552-2218.
[Bráðamóttöku geðþjónustu landspítalanns](https://www.landspitali.is/sjuklingar-adstandendur/deildir-og-thjonusta/bradamottaka-gedthjonustu/) s: 543 4050 eða 543 1000
6 comments
Slétt tvö ár síðan: https://www.ruv.is/frett/fyrsta-tilfelli-covid-19-greint-a-islandi
Nú er það ekki “hversu slæmur veður faraldurinn” heldur “hversu slæmt verður kjarnorkustríðið”
Fer ekki að koma helgi?
Nú er gaman að hata Pútín og elska Úkraínu.
kaupið ykkur Potassium iodid töflur ef kjarnorkusprenging skyldi verða
ég er að elska veðrið, sérstaklega þar sem einn gluggi í íbúðinni minni heldur ekki vatni
Hef eiginlega ekki geðið í mér í dag til að ranta.
Fólk misskilur mig hvort sem er alltof oft, hvað ég er að segja, hvað ég meina, eða reynir að lesa einhvern milli-línana skilning úr því sem ég segji, þegar að ég einfaldlega meina akkúrat bara það sem ég læt út úr mér.
(þeas, þegar að hlutirnir komast rétt út úr mér, þar sem að draslið í hausnum á mér virkar oft ekki saman… einn hluti hugsar eitt, annar hluti ruglast í ríminu og gerir eitthvað aðeins öðruvísi, og stundum verð ég ekki einu sinni var við það. fokk hvað maður getur verið blindur á sjálfan sig, eða sjálfið)
Why make sense when you can’t.
Kvart!
Hvernig í ósköpunum getur það verið löglegt fyrir trukkabílstjóra að vera með bókstaflegar sólir framan á bílunum hjá sér? Ég taldi yfir tuttugu kastara og önnur aukaljós framan á trukk í dag. Maður sér þá koma marga kílómetra áfram og ef þeir gleyma að slökkva nógu fljótt hverfur heimurinn og maður sér ekki neitt.
Núna í vetur mætti ég einum sem harðneitaði að slökkva. Ég blikkaði, hann gerði ekkert. Ég blikkaði aftur og aftur gerði hann ekkert. Ég varð pínu pirraður og blikkaði hann hratt þrisvar sinnum. Hann þá ákveður að blikka mig stanslaust þangað til við vorum búnir að mætast. Blikka mig með sólinni framan á sér sem enginn kemst lífs af að horfa beint í. Vegurinn var mjór og ég er ekki viss um að ég hefði ekki gengið í skrokk á fíflinu ef ég hefði farið út af og hann stoppað.
​
Sorry, ekki stærsta vandamál í heimi en mig hefur vantað að koma þessu frá mér í soldinn tíma.
Helvítis fokking fokk.