
Afhverju eru almannavarnir ekki búnar að lýsa yfir mögulegu hættustigi í landinu? Einræðisherra í einni stærstu þjóð í heiminum er búinn að hóta því að nota kjarnorkuvopn og almannavarnir hafa ekkert sagt eða gert? Getur einhver alvitur meistari útskýrt fyrir mér afhverju almannavarnir eru að skíta?
https://www.almannavarnir.is
6 comments
Eh.. hvað eiga almannavarnir að gera? Í hverju fellst skíturinn?
Stundum væri bara betra ađ vera ekki ađ borga fyrir ađ vera nato skotmark? Afar òlìklegt en samt..
Ég skil vel að þú sért óttasleginn yfir fréttunum, en það eru svo stórkostlega hverfandi líkur á því að kjarnorkuvopnum sé beitt og þess þá heldur að þeim sé beitt gegn Íslandi að það myndi aðeins gegna því að skapa ótta í fólki ef almannavarnir tækju einhverskonar stance á þetta.
Þrátt fyrir að Ísland sé í NATO þá býr það ekki lengur yfir sama hernaðarlega mikilvægi og það gerði fyrir 30-40 árum síðan, auk þess sem það hefur lítið að bjóða hernaðarlega og er fyrir vikið ekki stórt skotmark á heildarskalanum – það væru þá ekki nema stöku loftnetsstöðvar og flestar eru þær langt frá byggðum og varla þess virði að nota öflug kjarnavopn á þau(hefði maður haldið…)
Ekki bara það, allt svona hernaðarbrölt hefur áhrif á millilandasiglingar og hvað er hægt að fá af vörum. Núna er tíminn til að kaupa vöruna sem þú ert búinn að vera að spá í, ekki bíða með það, það er allt verðlag að fara að hækka og veldisvöxtur á því þar sem skattar og aðflutningsgjöld hækka í % af verði svo 1kr hækkun frá framleiðanda er orðin 3kr þegar varan rúllar út úr búðinni.
Hérna horfðu á þetta:
https://youtu.be/WUdFGZuiQd8
Þetta er hárrétt hjá þér.
En venjulegir Íslandingar sem hafa aldrei þekkt annað en frið og hamingju halda að “æ er þetta ekki svo ólíklegt” að það gerist ekkert. Og miðað við kommentin í þessum þræði virðist fólk ekki skilja eðli hættunar fyrir Íslendinga þegar kjarnorkusprengjur eru sprengdar í löndum fjarri Íslandi.
Svíþjóð hefur mjög ábyrga almannavarnastefnu sem er hægt að kynna sér og fylgja. Þar hafa menn aðeins betra skynbragð á alvöru heimsins.