Íslenskir ólígarkar

9 comments
  1. Hvað fengu Bezos og Musk frá ríkinu á gjafaverði? Er verið að tala um samninga sem þeir gera við Nasa um geimferðir?

    Ætla ekki að hæla þessum mönnum fyrir hjartahlýju sína en þessi samanburður er gjörsamlega út úr korti.

    Þegar Sovétríkin féllu fékk hver rússi úthlutað bréf sem hann gat nýtt til að kaupa í hvaða félagi sem var í landinu þegar útboðin fóru fram. Risastór olíu og sjávarútvegs fyrirtæki í Síberíu fengust fyrir örfá bréf því þegar uppboðin fóru fram þá skipti engu máli hvað þeir sem mættu voru með mörg bréf eða hve margir mættu. Menn lokuðu vegum að uppboðunum til að tryggja sér eignir og svo var hægt að kaupa umrædd bréf á mjög lágu verði á almennum markaði því almenningur í Rússlandi átti ekki neitt.

    Mæli með að fólk lesi Eftirlýstur eftir Bill Browder til að fá innsýn í hvernig þetta ferli átti sér stað.

    Bezos og Musk eru fáránlega ríkir, það er alveg rétt. En þeir byggðu sín veldi upp “heiðarlega” á eigin spýtur.

  2. Ég bara verð að segja að það er geðveikt kúl að finna leið til að tengja innrás Rússlands í Úkraínu við sína eigin heimapólitík.

    Meira svona takk og ég er með nokkrar hugmyndir að pistlatitlum.

    *Er Bjarni Ben Pútín Íslands?*

    *Lúkashenko og Katrín, spegilmyndir hvors annars.*

    Og ein fyrir hægrið líka.

    *Vestmannaeyjar. Donbas/Luhansk Íslendinga.*

  3. Það er bara kjánalegt að nota orðið ólígarkar í tengslum við annað en rányrkjuna í kjölfar hruns Sovétríkjanna.

    Við eigum auðvitað okkar óheiðarlegu skíthæla sem sölsuðu undir sig eignir þjóðarinnar (sægreifarnir, S-hópurinn, kaupendur Borgunar o.s.frv.) en það þýðir ekki að hérna séu komnir óligarkar. Að nota hörmungar í öðrum löndum til að vekja upp hugrenningartengsl er bara ósmekklegt og eiginlega bara virðingarleysi gagnvart fórnarlömbunum.

    Það má þó með sanni segja að til sé a.m.k. einn íslenskur olígarki; Björgúlfur Thor Björgúlfsson.

    Hann byrjaði strax að kaupa eigur rússnesks almennings fyrir slikk árið 1991. Svo eignaðist hann, ásamt viðskiptafélögum sínum, bjórverksmiðju í St. Pétursborg á mjög vafasaman máta. Hann seldi sinn hlut fyrir 400 milljónir dollara um aldamótin. Það virðist hafa verið allskonar ógeð í kringum reksturinn og m.a. voru tveir aðilar tengdir helsta keppinauti verksmiðjunnar myrtir um bjartan dag.

  4. ive read it with google translate. keep pushing young icelanders dont be afraid of the spiderwebs of the establishment.

Leave a Reply