Sjá frétt og hlekk á dóm héraðsdóms: [https://fotbolti.net/news/04-03-2022/manga-escobar-daemdur-fyrir-naudgun-og-er-i-farbanni-fra-islandi](https://fotbolti.net/news/04-03-2022/manga-escobar-daemdur-fyrir-naudgun-og-er-i-farbanni-fra-islandi)

Mér leiddist svo ég las stóran hluta dómsins. Ef fleiri hafa áhuga á að blaða í þessu, þá þætti mér gaman að heyra hvað ykkur finnst um eftirfarandi:

a) Er yfir allan vafa hafið að nauðgun hafi átt sér stað? Persónulega finnst mér það fjarri lagi. Seinni spurningin er þar af leiðandi:

b) Teljið þið að íslenskur maður hefði verið dæmdur í sama máli? Ég held ekki.

P.S. Ég þekki umræddan mann ekki, ég er ekki Leiknismaður, og ég er ekki að reyna að hefja umræður þess efnis að konur ljúgi nauðgunum upp á karlmenn.

1 comment
  1. Samkvæmt hans eigin frásögn þá var hann á þriðja bjór og hittir konu sem er svo ofurölvi að hún getur ekki gengið eðlilega, og segist ekki geta komist heim nema með aðstoð frá vinkonu sinni. Ég held að hvaða maður sem er hefði átt að átta sig á því að manneskja í slíku ástandi er ekki í ástandi til að veita samþykki fyrir kynlífi.

    Kannski ef hann hefði verið jafn ölvaður og hún myndi ég sjá málið öðruvísi, en þar sem hann viðurkennir að hafa bara verið á þriðja bjór þá þykir mér þetta frekar open and shut.

Leave a Reply