
Ný löggjöf sem veitir lögreglu aukinar heimildir til að hafa eftirlit með almenningi án grunns um brot. Frétt á vísir í morgun
[https://www.visir.is/g/20222232389d/vill-skerpa-heimildir-log-reglu-til-ad-geta-gripid-fyrr-inn-i-at-burda-ras-](https://www.visir.is/g/20222232389d/vill-skerpa-heimildir-log-reglu-til-ad-geta-gripid-fyrr-inn-i-at-burda-ras-)
Linkur á samráðsgátt frumvarpsins
[https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3170](https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3170)
Til hægri á síðunni má finna pdf með frumvarpinu og greinargerð.
Að lesa yfir þetta er hörmung. Lögin eru svo loðin að hálfa væri hellingur. Í einni greinni segir “Eftirlit skal ekki viðhaft lengur en nauðsynlegt er og leiði eftirlit til gruns um afbrot skal rannsókn fara fram skv. lögum um meðferð sakamála.” Hér segir beint að það þarf ekki að vera grunur um brot áður en eftirlit hefst. Hver ákveður hversu lengi eftirlitið standi yfir? Og hvað ef ekkert finnst? Hvað gerir lögrega við gögnin sem er safnað á meðan eftirliti stendur? Og ekki að ég hafi heldur trú á að eftirlits nefnd með störfum lögreglu muni standa sig ef þessi löggjöf verði misnotuð, sem hún verður pottþétt. Svipaðar löggjafir hafa verið misnotaðar gegn fréttamönum og aðgerðarsinnum, til dæmis í Frakklandi þegar mótmæli voru í kringum loftslags ráðstefnuna í fyrra. Svona lög eru einungis sett til að auka vald r´ikisins og skerða réttindi borgaranna undir þeirri hulu að þetta auki öryggi.
Ég hef ekki áhuga á að sjá Ísland verða af lögregluríki, þetta er smá skref í þá átt. Gefur litla putta og á endanum fer handleggurinn uppað öxl.
Að lokum er hér linkur á síðu Ameríska samband borgaralegra réttinda um hvernig Patriot Act hefur verið misnotað.
[https://www.aclu.org/other/myths-and-realities-about-patriot-act](https://www.aclu.org/other/myths-and-realities-about-patriot-act)
5 comments
Þetta er erfitt mál. Persónulega vil ég gefa lögreglunni allt sem hún mögulega þarf til að uppræta og sporna við skipulagðri glæpastarfsemi. Hve langt við eigum að ganga til að verða við því hef ég ekki svörin við. Sem betur fer er ég svo ómerkilegur að lögreglan mun aldrei hafa áhuga á mér eða neinu sem ég geri.
Ég er sammála þér að mörgu leyti en á sama tíma er ég til í að skrifa upp á þessi lög því þau snerta mig ekki nógu mikið.
Er að gefa upp heimsku mína að öllum líkindum með þessum pósti. Svona lítur þetta út frá mínum dyrum í hið minnsta.
Þetta er til að geta vaktað vonda útlendinga sé eru að koma til landsins. Hefur þú kannski eitthvað að fela?
Ef þú ert ekki að gera neitt af þér þá þarftu ekki að spá í þessu, lögreglan myndi aldrei misnota tæki sín, tól og valdheimildir 😇
Kveðja, svona helmingur kjósenda.
Lögin eru viljandi loðin svo að ef það verður kært fyrir ofsóknir að hálfu lögreglunar þá er hægt að túlka þetta svona eða hinsegin.
Það verður algjörlega ömurlegt ef þetta verður að raunveruleika og það þarf að stoppa þetta mál með öllum tiltækum ráðum.
Það að ætla sér að proppa upp lélegt og óhæft lögreglulið með auknum heimildum og valdi verður mikið ógæfuspor fyrir samfélagið.
Þetta er hræðilega hættulegt Big Brother frumvarp sem vegur illilega að öllum hugmyndunum um frjálslyndi og friðhelgi einkalífsins. Og tímasetningin gæti ekki verið verri, nokkrum dögum eftir að eitt af stærri lögregluembættum landsins gerðisr sekt um að brjóta lög í aðför gegn blaðamönnum. Með þessu frumvarpi þurfa þeir ekki einu sinni að koma með einhverja sögu um nektarmyndir á síma, geta bara rannsakað og hundelt blaðamenn þegar þeim dettur í hug, eins lengi og þeim dettur í hug.
Þrátt fyrir allt þetta hef ég engan vafa um að frumvarpið muni sigla auðveldlega í gegn um alþingi með þá forræðishyggjustjórn sem þar situr, og verða orðið að raunveruleika fyrir sumarið.
Lífið á eftir að versna hérna fyrir alla jaðarsettahópa, sem og alla sem hafa skoðanir sem Lási lögga ákveður að séu “öfgakenndar”. Það er vitað að ákveðin öfgahægri hugsunarháttur þrífst innan lögreglunnar, og blasir stundum við okkur í formi barmmerkja á einkennisbúningum. Fyrir fólki með slíkan hugsunarhátt eru allir vinstra megin við Gavin McInnes með “öfgakenndar skoðanir”.
Ég sé fyrir mér að þetta frumvarp verði notað til að hundelta alla sem tilheyra samtökum sem lögreglumönnum þykja pirrandi, til dæmis No Borders. Og svo auðvitað flóttafólkið. Ef þetta frumvarp hefði verið komið í gang þegar mál [Egypsku fjölskyldunnar](https://www.visir.is/g/20202016370d) var í gangi hefðu þau aldrei átt möguleika á því að fela sig hjá góðu fólki þangað til dvalarleyfið fengist. Þau væru þá löngu send til Egyptalands, foreldrarnir líklega dánir og börnin á götunni.
En þetta vita auðvitað höfundar og stuðningsmenn frumvarpsins allt vel, því þetta er jú tilgangurinn. Allt tal um að tækla skipulagða glæpastarfsemi er ekkert annað en fyrirsláttur, enda vitum við vel að lögreglan er líklegri til að ráða [höfuðpaura slíkrar starfsemi](https://www.visir.is/g/20212059044d) í vinnu til sín sem uppljóstrara, en að gera einhverjar raunverulegar tilraunir til að stöðva starfsemi þeirra.