
Píratar voru að leggja fram nýtt [frumvarp á Alþingi](https://www.althingi.is/altext/152/s/0652.html).
Í stuttu máli er það glæpur í núverandi lögum að fara ekki eftir fyrirmælum lögreglunnar, jafnvel þó að þau fyrirmæli séu “ólögmæt”. Þarna er lagt til að það verði einungis refsivert ef fyrirmæli löggunnar eru lögmæt (s.s. ekki bara duttlungakenndar fyrirskipanir löggunnar).
T.d. var gaur að mótmæla fyrir utan bandaríska sendiráðið og löggan sagði honum að hypja sig. Hann gerði það ekki og var fundinn sekur um að fara ekki að tilmælum lögreglunnar, **jafnvel** þó að hann hafi verið í 100% rétti til að mótmæla þarna og löggan hafði enga heimild til að banna honum að mótmæla.
Vonandi verður þetta samþykkt. Og það verður áhugavert að sjá hvort að flokkar sem styðja “frelsi” muni styðja þetta eða kæfa þetta í nefnd.
—
Hérna er lagabreytingin, þau vilja bæta inn feitletraða orðinu í [löggulögunum](https://www.althingi.is/lagas/152a/1996090.html):
>19. gr Almenningi er skylt að hlýða **lögmætum** fyrirmælum sem lögreglan gefur, svo sem vegna umferðarstjórnar eða til þess að halda uppi lögum og reglu á almannafæri.
12 comments
Flott þetta.
Kemst aldrei í gegn.
Eftir að hafa eytt miklum tíma í að horfa á myndbönd þar sem þegnar vestanhafs skora á lögreglu að fylgja því eftir, að refsa ekki fyrir það sem ekki er glæpsamlegt, lýst mér mjög vel á þetta.
Af hverju erum við ekki með stjórnarskrárvarin réttindi, eins og t.d. að eiga réttinn á að ferðast eins og okkur langar innanlands án nokkurra vandkvæða, og að vera eigi skyldug að gefa lögreglu skilríki eða segja til nafns, stöðvi lögreglan okkur á víðavangi við að gera whatever?
Edit: Mikið þætti mér næs ef þetta væri svipað og vestanhafs varðandi það þá, að við eigum ákveðin réttindi sem hægt er að láta reyna á til að koma þeim í klandur sem ekki virða réttindi okkar, almennings?
Það er hægt að leggja fram allskyns frumvörp, mikilvægari spurningin er frekar hvort þetta fer í gegn. Mér finnst þetta að vísu sniðugt frumvarp, en tel ég það ólíklegt að eitthvað verði úr þessu.
Þessu tengt þá skil ég ekki alveg af hverju Píratar eru ekki betri í PR-i.
Þegar þau setja svona frumvarp fram þá ættu þau að vera með fréttatilkynningu (tilbúna frétt með tilvitnununm í einhvern þeirra) og senda hana á alla fjölmiðla með sínu eigin spinni á þetta og reynt að gera þetta fréttnæmt. Þetta væri jákvæð frétt og það yrðu örugglega gerðar fréttir um þetta – fréttamenn eru “latir” og eru ánægðir með að fá “tilbúna” frétt.
Nema það hafi þegar verið skrifaðar fréttir um þetta og að ég hafi ekki rekist á þær. 🙂
Geggjað frumvarp sem er mikil þörf á. Það mun líka aldrei ná í gegn því miður. Í staðinn mun stórabróðurs frumvarp Sjallana fara í gegn sem gefur lögreglunni carte blanche til að njósna um hvern sem er, hvenær sem er, án þess að þurfa neina ástæðu. Og fólk sem kallar sig frjálshyggjumenn with a straight face mun fagna því.
Heimur versnandi fer, einstaklingsfrelsi verður fljótlega bara gömul saga úr fortíðinni.
Ég ber mikla virðingu fyrir því hlutverki sem lögregluþjónar sinna, og því styð ég þetta af heilum hug. Það er slæmt fyrir alla, lögregluna þar með talið, þegar lögregluþjónum er gefið rými til þess að framfylgja sínum eigin vilja, án þess að hann samræmist lögum, án afleiðinga.
Ótrúlegt að þetta skuli hafa orðið að lögum til að byrja með. Kominn tími til að lagfæra.
[Löggan…](https://youtu.be/FXnB3o9FAoo)
Flott lög.
Mér finnst frábært hvað píratar hamra aftur og aftur á frábærum punktum, sem hægt er svo að benda á fyrir kosningar hvað varðar kosningaloforð gömlu flokkana.
Mögulega fer þetta ekki í gegn, en eins og svo margar góðar lagabreytingar frá pírötum, þá er þetta allt að sýna að gömlu fjórflokkarnir eru innantómir og spilltir.
Mannréttindadómstóllinn hefur væntanlega eitthvað um þetta að segja
fuck politiks