
What! Ég vissi ekki að það ætti að byggja þarna. Sem íbúi á Akureyri myndi ég allan daginn velja vinstri kostinn https://www.facebook.com/groups/arkitekturuppreisnin/permalink/372221444493332/

What! Ég vissi ekki að það ætti að byggja þarna. Sem íbúi á Akureyri myndi ég allan daginn velja vinstri kostinn https://www.facebook.com/groups/arkitekturuppreisnin/permalink/372221444493332/
14 comments
Það þarf víst að láta hlekkinn fylgja með svona screenshot, ekki hægt að ýta á hann í titlinum
https://www.facebook.com/groups/arkitekturuppreisnin/permalink/372221444493332/
Finnst hægri flottara. Mjög góð en samt kósí nútímaleg hönnun.
Eitt þarna varðandi eldri hönnunina, svona turnar og form eru rosalega erfitt að ganga frá þannig þeir valda ekki leka. Alltaf að koma upp skemmdir og lekavandamál samkvæmt því sem ég hef séð á húsum sem ég hef skoðað vegna kauphugsunar.
Skil ekki alveg hvernig þessar þaksvalir eru á seinni myndinni, á vatnið að ausa af þakinu og yfir á svalirnar? O_ö
Aðeins oft sem svona hönnuðir eru bara að skoða útlitsformið á byggingunum, ekkert að hugsa um hvernig viðhald og byggingarvinnan er á þeim.
Bæði virðast vera fín. Ég hallast aðeins meira að hægri byggingunum (svalir, og hönnunin er skemmtilega wacky). Hins vegar er ég ekki alveg ánægður með litina á báðum tillögunum.
Mér finnst liturinn á byggingunum til vinstri vera frekar “drab” og finnst að þau ættu að velja skærari liti. Kannski rauðbrúnan.
Mér finnst grái liturinn á byggingunum til hægri láta þær líta út fyrir að vera ókláraðar (minnir á steypuklump úr fjarlægð). Það mætti velja annan lit í staðinn fyrir gráa litinn. Kannski eitthvað inná milli brúnt og appelsínugult.
Þessi “arkitekturuppreisnin” grúppa á facebook er rosalegt echochamber.
Vinstra myndin allan daginn fyrir íslenskt veður mínus turnin, væri þetta mjög skandinavísk og gömul íslensk hönnun sem er það sem maður vill búa í ef maður er með smá verkvit í kollinum.
Persónulega finnst mér myndin til hægri vera fallegri. Ég renndi yfir teikningarnar sem skráðar eru á þetta heimilisfang húsið lítur vel út og gluggarnir eru aðeins öðru vísi en myndin leggur til þe það er búið að brjóta þá upp svo þeir eru ekki eins stórir flekar. Ég get ekki betur séð en að á myndinni til vinstri er gert ráð fyrir verslun í götuhæð sem hefur verið hætt við og í staðin koma fleiri íbúðir sem er gott og einnig hefur það verið hækkað um eina hæð að hluta.
Hérna er fín afstöðumynd af húsunum: https://gagnasja.akureyri.is/Teikningar/Austurbrú/G9379.pdf
Ég fyrirlít íslenska arkítekta svo mikið. Það er svo dapurt að fara erlendis og koma svo aftur til þessarar sóvíesku grá-og-svört-kubbahúsa-arkítéktúra-auðnar.
Báðar tillögur eru ekki fallegar.
vinstri allan daginn
Skiptir ekki máli hvor það er en ef það fellur illa inn í bæjarmyndina í kring þá er það lélegri kostur.
Fyrir sjálfan mig þá finnst mér það léleg hönnun að láta þak halla út á gangstétt þar sem verslanir eru á fyrstu hæð, sérstaklega þar sem getur snjóað slatta.
Mér er alveg sama hvernig hús annað fólk vil byggja á þeirri lóð. Svona hugmyndir um allar nýjar byggingar þurfa að fá samþykki frá öllu mögulegu fólki í nágrenninu leiða beint til húsnæðisskorts.
Svo lengi sem það er byggt, og byggt vel. Þá er mér nokk sama.
Þó svo ég aðhyllist “gamaldags” hönnun, þá tekur hún einfaldlega lengri tíma. Þegar ég mun byggja mér(er í húsasmíði) þá mun ég byggja “gamalt” en það er bara ég
Lítur frekar sambærilega út að mínu mati.
Ég er hrifnari af “eldra” útliti þegar kemur að byggingum þannig að ég hallast frekar að vinstri myndinni, en ég sé ekkert að þeirri hægri.
Held að þetta sé bara spurning um smekk.