Sigga, Beta og Elín fara alla leið í Eurovision – góður kostur?

23 comments
  1. Hot take: Mér fannst lagið þeirra betra en lag Reykjavíkurdætra.

    Ég er ekki heldur sannfærður um að lag Reykjavíkurdætra sé Eurovision-vænna. Minni á velgengni Calm before the Storm á sínum tíma.

  2. Ég hefði verið mjög anægð með reykjavikurdætur og var handviss að þær tækju þetta. En ég er mjög ánægð. Eg kaus sigurlagið 3x og rvk dætur 1x
    Ég var ekkert endilega impressed fyrst þegar eg heyrði Með hækkandi sól en það vex a mann fljótt. Hefur verið spilað vandræðalega oft í dag a minu heimili.

  3. Þetta lag er svo litlaust og óeftirminnilegt.

    Ég spái svona 12 stigum í heild mest í Eurovision.

    Og svona.. þvert á mitt álit á þeim kellum, þá finnst mér að RVKDætur ættu að hafa farið út.

  4. Fannst engir góðir kostir í ár. Flestallt sæmileg lög svo sem, en ekkert með neinn svona “vá!” eiginleika.

  5. Yfirburðar lag, vel verðskuldað. Það var viðbúið að twitter yrði ekki sátt með neitt nema að RVKD tækju þetta. Systurnar munu þjóna okkur betur sem fulltrúar þegar lengra er litið, sérstaklega miðað við ástandið sem geisar í evrópu um þessar mundir.

  6. Lagið hjá Kötlu átti skilið betri söngkonu og atriði. Hörku lag en mér þótti hún ekki bera það. Fékk rosa mússíktilrauna væb.

  7. Verð að segja mína skoðun en öll keppnin í ár var lélegri en oft áður. Það vantaði eitthvað lag, eða lög, sem maður hugsaði við fyrstu hlustun “vá þetta er geggjað lag”. Vonandi að þeim gangi bara vel úti, þær hafa allavega minn stuðning.

  8. Mikið yljaði það um hjartarætur að sjá twitter taka tantrum yfir að Reykjavíkurdætur hefðu ekki unnið. En að öllu gamni slepptu þá vann betra lagið. Ekki bara betra lag heldur betri söngvarar líka.

  9. Það var klárlega ekkert atriði þetta árið sem hrópaði á mann að það ætti góða möguleika á lokakvöldinu. Systurnar sungu fallega samið lag, RVK dætur komu með partýið, en hvorugt þeirra mun gera gott úti.

    Með Hækkandi Sól er vel samið, en grípur mann ekki. Flestir evrópubúa sem kjósa munu bara heyra það einusinni. Þeir munu ekki hafa tíma til að meðtaka lagið og læra að elska það, eins og mörg góð lög krefjast.

    RVK dætur komu með lag sem er einfaldlega ekki nógu gott fyrir stóru keppnina úti.

  10. Eurovision er bara sin eigin tonlistarstefna, er sjalfur ekkert mikill aðdáandi af þvi en skil samt ekki a sama tima afhverju allir kvarta a hverju ári, þetta er bokstaflega það sem var búist við i hvert skipti, evropsk popp söngvakeppni

  11. Ekki hægt að kvarta yfir þessu lagi.

    Rkvdtr og þessar systur held ég að myndu ná jafn langt í keppninni. Lagið hjá rkvdtrm var samt svo líkt Toy frá Nettu að ég er ekki viss um að það hefði komist mjög langt. Eurovision er íhaldssamið en vill samt alltaf eitthvað nýtt.

  12. Fínt lag en mun ekki komast upp úr undankeppninni.

    Ég hélt að Katla myndi taka þetta og RVKdætur yrðu í öðru sæti. Kom mér mjög á óvart að systurnar unnu af því það var svo meh miðað við hin tvö atriðin.

  13. Ok hlustaði á bæði lögin í fyrsta skipti núna, og það er bæði mun mun betra lag og ekki síst mun betri flytjendur sem unnu.

    Fingst svo ógðeðslega tragikómíst að aðdáendur RVKDRT eru að púlla feministaspilið og búa til e-ð símasamsæri þegar lagið sem vann er bæði samið og flutt af meirihluta LGBTQ+ konum..

  14. Eins og aðrir hafa sagt hér þá var ekkert lag sem mér fannst merkilegt í ár (fyrir utan kannski gíu) en lögin sem komust í einvígið voru skást af þeim sem komust í úrslitin.

Leave a Reply