
Sæl öll ég vona að þetta innlegg sé í lagi,
Ég tók eftir því að fólk er að heimta það að Duolingo bæti við okkar ástkæra og ylhýra móðurmáli á listann hjá sér. Það er því búið að setja upp undirskriftarsöfnun:
[https://chng.it/qyYv7hXJrh](https://chng.it/qyYv7hXJrh)
Þó að við höfum ekki not fyrir þetta þá finnst mér hálf móðgandi að Klingon og High Valyrian sé í boði en ekki íslenska.
Pís át!
1 comment
Íslenska er á Drops sem er mjög gott forrit.