Gildir hið sama hérlendis? Eru einhverjar líkur á að þetta endi vel, erum við að tala um Big Short atriði á nýjan leik?

4 comments
  1. Ég keypti íbúð í Janúar í fyrra undir markaðsverði, í nýbyggingu þar sem það skipti vertakann meira máli að klára að selja restina en að kreista sem mest út úr hverri einustu íbúð. Ég var ekki með neinar kvaðir þannig ég var að bjóða upp á fljótt og auðvelt söluferli fyrir þá og bauð aðeins undir.

    Núna, ári seinna hefur íbúðin hækkað um rúmlega 44 milljónir ef miðað er við fermetraverðið í kring, sem gerir hækkun um 3.15 milljónir á mánuði. Þannig að í mínu tilfelli þá gildir þetta, hækkunin hefur verið meiri en atvinnutekjur.

  2. Ég keypti íbúð 2016 á 32.5 milljónir. Sambærileg íbúð í næstu blokk var að seljast á 65 milljónir.

    Það er “ekki nema” ca 5.5 milljónir í aukningu á ári. Það nær ekki meðallaunum en helvíti nálægt því.

    Þetta eru samt bara monopoly peningar nema þú eigir fleiri en eina íbúð. Þú verður að búa einhverstaðar. Ef ég seldi þessa íbúð þyrfti ég að kaupa aðra jafn dýra. Þetta er ekki raunverulegur hagnaður fyrir mig.

  3. Íbúðin mín hækkaði umtalsvert, veit ekki hvort að það er meira en ég meikaði fyrir skatt en já klárlega hef ég ekki “grætt” jafn mikið og síðan og ég fór á fasteignamarkaðinn.

    En the big short dæmið snerist meðal annars um að það var slaaaaattti af af slæmum húsnæðislánum sem voru gefin út til fólks sem gat ekki borgað af þeim.

    Þau voru gefin út af fólki sem hafði fjárhagslegan ávinning af því að taka saman slaaattta af húsnæðislánum og selja sem einhverskonar veð.

    Að mér vitandi er slíkt ekki í gangi núna. En það er ekki þar með sagt að það sé ekki stormur í uppsiglingu. Efnahagurinn fyrir 2020 hafði verið kreppulaus í 12 ár, eitthvað sem hafði ekki gerst í langan tíma. Í þessu blessaða kapítalíska kerfi okkar var “kominn tími á “Kreppu, verðbólgu og vesen” en covid gerði mörgum ríkistjórnum kleift að sópa þeirri kreppu undir teppi sem hét efnahagsaðgerðir útaf Covid. Það snérist oftar en ekki um að prenta massíft magn af peningum og dæla í vasa fyrirtækja og stundum í vasa fólks.

    Slíkt felur í sér verðbólgu, óhjákvæmilega. Það er meira af peningum til en aður sem gerir þá verðlausari. Og nú er Pútín búinn að fleygja sjálfum sér í ruslið og hann mun draga restina með. Efnahagur stórveldis hrynur ekki í tómi.

    Þannig að mitt óupplýsta, ófaglærða, besservissera take er: Já slæmir hlutir munu eiga sér stað en það þarf ekki að vera jafn slæmt og 2008 þar sem bankarnir hrundu.

  4. Munurinn á 2008 kreppunni og þeirri næstu sem mun líklegast koma er að þessir peningar eru til. 2008 Kreppan varð til með því að bankarnir veittu 100% lán upp á t.d. 50m til manneskju sem gat ekki borgað lánið, síðan seldi bankinn lánið sem mjög traust lán til annarra banka/aðila sem hélt að það væri að kaupa lán sem það myndi alltaf fá greitt fyrir en svo var ekki. Með því bjó það til ímyndaðan pening.

    Covid kreppan (ef það má kalla hana það) er vegna þess að allar seðlabankar heims hafa sett met í peningaprentun og því verður til gríðarleg verðbólga þar sem allir gjaldmiðlar heims munu missa sitt verðgildi, en þessi peningur sem var prentaður er samt til annað en í 2008 kreppunni.

    Ég kemst líklegast loksins á fasteignamarkaðinn á þessu ári, en ég öfunda ekkert smá fólk sem er bara 3-5 árum eldri en ég sem fékk að sleppa við þessa 50% hækkun sem er búin að eiga sér stað.

    Tek það fram að ég algjör layman í þessum fræðum en mér hefur verið útskýrt þessa stöðu á þennan máta.

Leave a Reply