Bjarni telur tóm vand­ræði geta hlotist af þjóðara­t­kvæða­­greiðslum

14 comments
  1. > Og já, ég er þeirrar skoðunar að það geti skapast tóm vandræði af því að leggja fyrir þjóðina spurningar sem fyrir fram liggur fyrir að meiri hluti þingsins er á móti.

    Þetta er actual quote frá Bjarnimir, litlu einræðistilburðurnir frá þessum trúð.

    Þjóðin skiptir engu máli ég er á þingi það er ég sem ræð. Þessi hugsunarháttur er stórhættulegur og á ekki að heyrast frá lýðræðislegum kjörnum fulltrúa þjóðar, það þarf að henda honum útaf þingi strax.

  2. Gott að vita, þannig að ef þingmeirihluti verður einhverntímann fyrir því að ganga í ESB þá ætti þingið bara að ganga inn án þess að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu. Einfaldar málið talsvert, takk Bjarni

  3. Já það eru tóm vandræði þegar að þjóðin fær loks að segja til í málum sem skipta hana máli. Þetta er algjört einræðisherra tal.

  4. Formaður Sjálfstæðisflokksins öll saman! Gefum honum, og öllu fólkinu á bak við hann, gott klapp!

  5. Hversu langt núna þar til einhver kemur upp á ræðupúltið og segir að “Ísland er ekki alevrópsk þjóð”, þá fer aldeilis að hitna í kolunum hjá okkur.

  6. Þetta er vandmeðfarið. Þessi tilvitnun er að mörgu leyti kortér í fasisma.

    Á móti þá þarf ekki annað en að horfa til Brexit þar sem breska þjóðin kaus um stefnubreytingu sem hún hafði ekki hundsvit á og sér nú eftir.

    Það þarf að fræða okkur almenning vel og vandlega um kosti og galla sem fylgja inngöngu í ESB og ÁN ÞESS að upplýsingarnar séu litaðar af hagsmunaöflum.

  7. Þetta eru gamlar fréttir síðan flokkurinn hans og hann sjálfur sveik allt tal um að þjóðin fengi að ákveða hvort viðræðum yrði haldið áfram við evrópusambandið árið 2013 og bar síðan fyrir sig “Pólitískum ómöguleika”^TM

    Lýðræði fyrir honum er að á 4. ára fresti fær fólk að kjósa sinn flokk sem mun starfa í umboði viðkomandi í fjögur ár og innifalið í því umboði er rétturinn til að semja um kosningaloforð og stefnur á bak við lokaðar dyr og eftir fjögur ár fær kjósandinn að segja hvort hann hafi verið sáttur eða ekki. Á engum tímapunkti á meðan þessum fjórum árum hefur kjósandinn eitthvað vald til að ákveða eitt eða neitt. Hann er búinn að afsala sér þessu valdi sem hann hefur einn dag ár ári, á kosningadag.

    En það þýðir lítið að hneykslast á manninum. Hann kemur fram hreinn og beinn um hversu slímugur hann er og 23% +-3% líst bara vel á.

  8. Við búum við fulltrúalýðræði. Fulltrúar eru kosnir eftir sínum stefnum. Það er eiginlega hálf fáránlegt að vera með beinar kosningar til að neyða fulltrúa til að gera eitthvað sem þeir unnu kosningar út á að gera ekki.
    Ef þið viljið aðildarviðræður við ESB kjósið fulltrúa sem hafa þá stefnu.

  9. Ekki að verja neitt, en þjóðaratkvæðisgreiðslur geta verið meira andskotans bullið þegar hagsmunaaðilar auglýsa og plata fólk til að kjósa sér í hag. Til að mynda er hægt að nefna dæmi um Sviss, þar sem auðvelt er að kalla fram á bindandi þjóðaratkvæðisgreiðslur um ýmis mál. Nýlega var kosning þar, þar sem kallað var eftir að [banna](https://www.swissinfo.ch/eng/politics/swiss-to-vote-on-protecting-children-from-tobacco-ads/47336990) auglýsingar á nikótínvörum gagnvart ungmennum… Eitthvað sem flestir ættu að geta verið sammála um að sé góður hlutur. En heil 43.4% þjóðarinnar kaus á móti því, hlýðandi áróðursmaskínu hagsmunaaðila.

  10. Ég er örugglega í minnihluta en ég treysti því engan vegin að fólk kynni sér mál fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu og held að stór hópur mundi t.d. bara kjósa eins og Sigurður Ingi af engri ástæðu.

    Það er samt ánægjulegt að sjá hversu margir treysta á að fólk hafi vit í kollinum!

  11. Finnst fólk sem talar um að ísland sé fulltrúalýðveldi soldið vera að horfa framhjá því að það er mekanismi í stjórnarskránni fyrir þau tilvik þar sem Forseti telur Alþingi vera að fara þvert á vilja þjóðarinar og setja það til atkæðvagreiðslu. Ef það yrði sett frumvarp um að ganga í ESB væri það 100% eitthvað sem Forseti gæti sett í þjóðaratkvæðagreiðslu, en það verður nú aldrei sett frumvarp “Við ætlum sko ekki að ganga í ESB” svo það er aldrei tækifæri til þess. Finnst samt principið samt gilda, þjóðaratkvæði ætti að vera á borðinu. Var annars einhverntíman e-ð frumvarp um að draga umsóknina tilbaka eða hvað?

  12. Ekkerr nýtt á ferð hér, þessi maður hefur tekið skýra afstöðu gegn nokkurs konar lýðræði fyrir löngu síðan. Finnst augljóslega eðlilegast að elítan ráði för án þess að skríllinn fái neitt að skipta sér að.

Leave a Reply