Áður en ég hoppa á hatursvagninn gegn Bjarna Ben, er einhver góð ástæða fyrir því að hafa selt hlutina á 5 krónum undir markaðsvirði? Ég sé enga ástæðu fyrir því, en er ekki expert í þessum geira og vildi gjarnan fá innsýn frá einhverjum sem veit hvað þau eru að tala um.
Hefur einhver afskrifað jafn mikið af peningum úr ríkissjóði og BB?
Bravó, Bjaddni.
En alveg einhverjir 50 þúsund Íslendingar fengu smá á sinn krók hérna fyrir ári síðan. Oggu-pínu-lítið reyndar miðað við þessa “hæfu fjárfesta”, og eiginlega bara til að þátttaka þeirra myndi helga þennan gjörning sem við gætum kannast við frá byrjun 10. áratugsins í Rússlandi – en það er bara hræðsluáróður og aðrar bábiljur frá gömlum komma sem hlítur að hata frelsið og eplabökur.
Eftir þetta allt saman vil ég ekki heyra eitt orð um að Sjálfstæðisflokkurinn sé fjárhagslega ábyrgur eða kunni að meðhöndla peninga. Það var að sjálfsögðu alltaf lygi, en ef fólk sér það ekki eftir þetta er því ekki viðbjargandi.
Það er svo fyndið að lesa komment frá fólki verða brjálað út í hluti sem það skilur ekki.
Framboð og eftirspurn 101.
Ég sé að það er nóg af internet-sérfræðingum hérna í þessum þræði sem eru tilbúnir að verja þennan gjörning af mismunandi ástæðum.
Ég veit ekki hvort þið eruð að ýta hugmyndarfræðinni ykkar, trúið þessu í raun og haldið að þið séuð færari í ykkar greiningu en aðrir sérfræðingar, þolið ekki að aðrir hafi áhyggjur og bara verðið að þagga niður í þeim, eða hvað ykkur gengur til – en þetta er alltaf sama fólkið með sömu frasana og það skiptir engu máli hvaða mótbárum það mætir hérna, frá sérfræðingum, eða raunveruleikanum. Ég hef ekkert meira við þessa athugasemd að bæta – ég skil ekki þessa þráhyggju að mótmæla allri gagnrýni varðandi að ykkar eigin eigur séu seldar ódýrara en eðlilegt telst. Þetta er bara undirlægjuháttur í mínum augum.
Þessi umræða er á ansi miklum villigötum, þetta er eitt stórt PR klúður hjá Bankasýslunni því mjög auðveldlega hefði verið hægt að koma í veg fyrir þessa ansi röngu umræðu.
Það er eðlilegt að selja þessi hlutabréf.
Það er eðlilegt að selja þau með afslætti.
Að selja fagfjárfestum er gott en líka allt annað ferli en þegar almenningi er boðið að taka þátt. Fagfjárfestum var vel ljóst að þetta væri að fara að gerast, það er búið að halda kynningarfundi með þeim og hvaðeina. Þetta var ekkert í skjóli nætur neitt heldur bara eðlilegt ferli.
Íslandsbanki er skráð félag í Kauphöll, því fylgir mikið af rauðu límbandi og regluverki og því nær ómögulegt að sjá eitthvað samsæri eða svindl í þessu.
Umræðan sýnir enn og aftur hvað almenningur skilur ekki hvernig svona virkar, sem hefði verið hægt að komast framhjá með gegnsærri og betri upplýsingagjöf.
Þessi þráður er svo til marks um lélegt fjármálalæsi að það nær engri átt
2,25 MILLJARÐA AFSLÆTTI OMG!!!!!!
Það er góð ástæða fyrir því að blaðamaður segir ekki frekar 4% “afsláttur” sem fyrirsögn.
Til að setja hlutina í samhengi þá var verðið á hlut á isb ódýrara fyrir aðeins 3 vikum.(114 kr Þegar búið er að taka arðinn inn í reikninginn vs 117kr núna) Þetta verð er í raun meðalverðið undanfarna mánuði. Varla hægt að kalla það afslátt.
Ef maður veit eitthvað um hvernig svona útboðum er háttað almennt þá er þetta algjörlega í samræmi við það og í raun er 4% afsláttur í minni kanntinum ef eitthvað er. Ríkið er klárlega að hámarka virði hlutarinns með þessari aðferð.
10 comments

En fjármálasérfræðingar í kjötheimum eru á örðu máli – [„Þessi mikli afsláttur sem er veittur vekur upp spurningar sem Bankasýslan eða ráðuneytið þyrfti að svara fyrir,“](https://www.ruv.is/frett/2022/03/23/hlutabref-i-islandsbanka-rjuka-upp-og-kaupendur-graeda)
Ég veit ekki hvort þið eruð að ýta hugmyndarfræðinni ykkar, trúið þessu í raun og haldið að þið séuð færari í ykkar greiningu en aðrir sérfræðingar, þolið ekki að aðrir hafi áhyggjur og bara verðið að þagga niður í þeim, eða hvað ykkur gengur til – en þetta er alltaf sama fólkið með sömu frasana og það skiptir engu máli hvaða mótbárum það mætir hérna, frá sérfræðingum, eða raunveruleikanum. Ég hef ekkert meira við þessa athugasemd að bæta – ég skil ekki þessa þráhyggju að mótmæla allri gagnrýni varðandi að ykkar eigin eigur séu seldar ódýrara en eðlilegt telst. Þetta er bara undirlægjuháttur í mínum augum.
Þessi umræða er á ansi miklum villigötum, þetta er eitt stórt PR klúður hjá Bankasýslunni því mjög auðveldlega hefði verið hægt að koma í veg fyrir þessa ansi röngu umræðu.
Það er eðlilegt að selja þessi hlutabréf.
Það er eðlilegt að selja þau með afslætti.
Að selja fagfjárfestum er gott en líka allt annað ferli en þegar almenningi er boðið að taka þátt. Fagfjárfestum var vel ljóst að þetta væri að fara að gerast, það er búið að halda kynningarfundi með þeim og hvaðeina. Þetta var ekkert í skjóli nætur neitt heldur bara eðlilegt ferli.
Íslandsbanki er skráð félag í Kauphöll, því fylgir mikið af rauðu límbandi og regluverki og því nær ómögulegt að sjá eitthvað samsæri eða svindl í þessu.
Umræðan sýnir enn og aftur hvað almenningur skilur ekki hvernig svona virkar, sem hefði verið hægt að komast framhjá með gegnsærri og betri upplýsingagjöf.
Þessi þráður er svo til marks um lélegt fjármálalæsi að það nær engri átt
2,25 MILLJARÐA AFSLÆTTI OMG!!!!!!
Það er góð ástæða fyrir því að blaðamaður segir ekki frekar 4% “afsláttur” sem fyrirsögn.
Til að setja hlutina í samhengi þá var verðið á hlut á isb ódýrara fyrir aðeins 3 vikum.(114 kr Þegar búið er að taka arðinn inn í reikninginn vs 117kr núna) Þetta verð er í raun meðalverðið undanfarna mánuði. Varla hægt að kalla það afslátt.
Ef maður veit eitthvað um hvernig svona útboðum er háttað almennt þá er þetta algjörlega í samræmi við það og í raun er 4% afsláttur í minni kanntinum ef eitthvað er. Ríkið er klárlega að hámarka virði hlutarinns með þessari aðferð.
Svaka anti-sjalla hringrunk í gangi.