Eru það ekki allir? Sá frétt af konu sem dirfðist að segja að hún vilji aldrei flytja aftur til íslands því henni líkar svo vel í Sviss og hún var bara krossfest og niðurlægð til heljar á Facebook.
Mikið var gaman að sjá að þessi annars ágæti fyrrverandi forseti komist ekki hljóðalaust upp með sína arfaslöku skoðun á innrásinni í Silfrinu í gær.
Þetta var svo ótrúlega einfeldningslegt – að Nató hafi einhvern vegin ýtt Pútín út í að fara að sprengja sjúkrahús í Úkraínu. Eins og smáþjóðirnar austur af Rússlandi hafi bara ekkert tilkall til að velja sína varnarstefnu sjálf og kjósa að finna sér skjól frá alræðisríkinu sem hefur murkað úr þeim lífið í gegn um aldirnar.
Rússland er eins og gæji sem froðufellir á lúbarða blóðuga konuna sína og öskrar “sjáðu hvað þú lést mig gera” á meðan Óli er “já, mátt ekki ögra kallgreyjið svona”
Svo er svo fyndið að sjá öfgahægri trúða hætta að gjamma um nasista í úkraínu enda sögulegt propaganda klúður sem féll kylliflatt á degi 1
Ég skil ekki þessi viðrbrögð. Hvar í viðtalinu sagði Ólafur Ragnar að viðbrögð Rússlands við auknum áhrifum vestur-þjóða í Austur-Evrópu væru réttlætanleg? Ég man ekki betur en að hann fordæmdi innrás Rússlands harðlega. Er í alvöru svona mikið af fullorðnu fólki á Íslandi sem heldur að Pútín hafi engar ástæður fyrir gjörðum sínum, og lítur (ranglega) á allar tilraunir til að skilja sjónarhorn Pútíns sem réttlætingu á gjörðum hans?
Maðurinn kom fram með 19. aldar pólitiska hugsun þar sem að innrás Rússa er réttlætanleg af því að þeim fannst ógnað. Að það sé fullkomlega eðlilegt að þeir ráðist inn í land sem að segir þeim að hypja sig þegar þeir reyna að skipta sér af utanríkisstefnu þess.
Það er bara ekki raunveruleikinn í dag þegar heimurinn er orðinn eins tengdur og samofinn eins og hann er, þetta er ekki tími Napóleons og stríðs sem áframhalds á utanríkisstefnu í anda Clausewitz. Þetta er tími kjarnorkuvopna og alþjóðastofnanna.
5 comments