Hver er ekki að borða skorpuna sína?

18 comments
  1. Afhverju ætti ég að sóa magaplássi í þurrt brauð þegar ég get notið flatbökunnar að bestu list? Ég borða kannski skorpuna eftirá ef ég er ennþá svangur

  2. Ég borða aldrei skorpuna og er hættur að skammast mín fyrir það.

    Allt í lífinu eru ákvarðanir teknar út frá ávinningi vs kostnaði. T.d. kostnaðurinn við að fara í ræktina er að það er leiðinlegt og ég verð þreyttur, en ávinningurinn er betri heilsa og form.

    Kostnaðurinn við að éta pizzu er óhollusta, meðan ávinningurinn er gott bragð. Skorpan er hins vegar bragðlaus en nánast alveg jafn óholl og restin af pizzunni. Allur kostnaðurinn, ekkert af ávinningnum. Ekki flókið reikningsdæmi.

  3. Er ég sá einni sem er minna að spá í skorpuni og meira að spá í að mann fjandinn nottar hníf og gaffal?

  4. Ég elska hversu mörg komment eru að verja það að borða ekki skorpuna – það er ekkert að því að borða ekki skorpuna, en ef þú skilur eftir skorpu geislabaug á disknum þínum og lætur eins og ekkert sé þá áttu heima á stofnun.

Leave a Reply