Hvernig líst ykkur á þessar tillögur Gunnars Smára?

10 comments
  1. TL;DRið sem ég les út úr þessu: Rússar myndu aldrei gera innrás á Íslandi, svo við eigum ekki að vera með. Vesturlönd ættu bara að gefa þeim 20.000.000.000.000 ISK á ári ef þeir lofa að vera þægir og góður nágrannar. Annars mun ríkisstjórnin okkar vonda hækka tekjuskatt um rúm 30%.

  2. Mér líst illa á þær eins og flest annað sem kemur frá þessum manni. Alveg fáránleg hugmynd að fara að borga þj´óðum fyrir að fara ekki í stríð. Hvað munum við svo þurfa að borga Kína mikið, eða öðrum þjóðum sem langar að ráðast á nágranna sína? Með þessu værum við að verðlauna þjóðir sem bullya nágranna sína.

  3. Nennir einhver að hlusta á Gunnar Smára ?

    Það er alræðisriki að hertaka frjálst land.

    Það er verið að myrða borgara, börn og gamalmenni.

    Alda ófriðar hefur skollið á Evrópu og lausnin hans er að múta Pútín og hrottunum hans ?

    Það virkar ekki og hefur aldrei virkað, græðgi og grimmd þeirra er óseðjandi og þeir myndu alltaf heimta meira og meira þangað til að það væri ekki neitt til eftir.

  4. Eins og flest allt sem kemur frá þessum manni er þetta kjánalegt og hann er mikið að því að gefa sér forsemdur.

  5. Þetta vopnabrölt eykur ójöfnuð í samélaginu!

    gefum landi þekkt fyrir hóp auðmanna sem rænt hefur öllu af almenningi í landinu peninginn í staðinn. Það mun bæta líf Rússa og velsæld almennt!

    Sniðugt…

  6. Sko, ég er nokkuð viss um að NATO er alveg sama um hvort minnsta ríkið í bandalaginu eyði meira eða ekki. Það breytiur voða litlu í stærra samhengi hvað Ísland gerir í varnarmálum.

    Auk þess þá held ég, að þó að sumir haldi að ríkisstjórn Íslands séu að öllu eða einhverju leiti vitleysingar þá eru þau ekki það miklir vitleysingar að sjá ekki að auka útgjöld til varnarmála á einu ári úr 0,08% af VLF í 2% af VLF sé stjórnmálalegt sjálfmorð, þau gætu kannski komist upp með að auka útgjöldin smávægilega.

    Að vísu er ég sammála Gunnari um að friður er alltaf skynsamlegri kostur. En aftur á móti hversu oft hefur það virkað að borga einhverjum til þess að vera ekki laminn?

  7. Si vis pacem, para bellum.

    Hann minnist ekkert á hugarfar Rússa, eða hvernig þeir hafa hagað sér á 21. öldinni. Hann gæti alveg eins fært rök fyrir því að hafa lása á hurðum væri peningasóun og við værum betur sett að setja allan peninginn úr ASSA industrial complex í heilbrigðiskerfið í staðinn.

    Að predika fyrir friði er rosa sætt, en það er óraunhæft þegar það er verið að fást við fanta sem taka yfir þá sem þeir telja veikari og geta ekki varist.

  8. Mér finnst þetta kjánlegt það sem hann segir, ég er orðinn þreyttur á honum og auðvitað er ég ekki svo þjóðernissamur um að réttláta að eyða svona miklu en mér finnst eins og 30% talan sé svolítið ýkt og held að ef ríkið myndi hætta að eyða í eih. Kjaftæði þá færi það létt með það að fjármagna aðeins aukningu í lanshelgisgæsluna og stofna eih. Skonar varnarlið og geta set eih. Í spítala en þykist ekkert vera expert

  9. Þetta er Gunnar Smári.

    Ég hef hingað til ekki lagt það í vana minn að taka mikið mark á því sem að vindhani eins og hann hefur fram að færa.

Leave a Reply