Vill fara mjög varlega í að segja að fíkniefni séu lögleg

14 comments
  1. Ummæli Bjarna Bens í fréttinni:

    >„Það er annars vegar það að hætta að refsa fíklum vegna fíknar og líta frekar á það sem heilbrigðisvandamál, en hin hliðin á málinu er þá sú að menn slaki þannig á löggjöfinni að það sé í raun og veru verið að stórauka aðgengi að fíkniefnum og þannig valda þróun sem væri mjög óæskileg,“ segir Bjarni.

    >„Ég myndi vilja fara mjög varlega í það að segja að fíkniefni séu lögleg á Íslandi,“ segir Bjarni.

    Getur einhver útskýrt fyrir mér hver grundvallarsjónarmið BB eru? Er hann ekki einn af þeim sem hefur viljað stórauka aðgengi að fíkniefnum (áfengi í matvöruverslunum)? Misminnir mig, eða er hann núna á móti auknu aðgengi að fíkniefnum?

    viðbót: Jamm, honum finnst til dæmis netverslun með áfengi vera [“frábær viðbót”](https://www.ruv.is/frett/2021/07/21/netverslun-med-afengi-frabaer-vidbot)

  2. Ég get vel skilið það sjónarmið að afglæpavæðing fíkniefna er í sjálfu sér mjög sorgleg, þar sem það er ákveðin viðurkenning á því að samfélagið hefur ekki tekist að sporna við þessari tilteknu úrkynjun, en ég get ekki betur séð en að kostir þess að afglæpavæða fíkniefni, þá helst þegar horft er á einstaklingana sjálfa sem helteknir eru af þessum efnum, séu afgerandi. Þegar maður sér muninn á því hvernig fer fyrir fíklum (t.d. í Vancouver í Kanada) þegar þeim er annars vegar gert að fela sig meðan þeir sprauta sig, og hins vegar þegar þeir sprauta sig undir eftirliti fólks, þá er, að mínu mati, erfitt að réttlæta núverandi stöðu.

  3. Sama hversu mikið ríkið vill telja sér trú um að það sé með stjórn á hlutunum að þá er líklegast enginn annar glæpur framinn jafn reglulega og hversdagslega og brot á fíkniefnalögum.

    Slakanir munu hafa jákvæð áhrif á þá sem kjósa að neyta og stunda viðskipti með vímuefni. En án lögleiðingar þá verður lítil sem engin breyting á undirheimunum og því ógeði sem fylgir svörtum mörkuðum.

    Annars er forvitnilegt að sjá að fjármálaráðherra hafi verið spurður að þessu. Mætti halda að það sé vegna þess að hann er Bjarni Ben og leiðtogi Sjálfstæðismanna frekar en að þetta sé eitthvað sem tengist því ráðuneyti sérstaklega.

    Fjármálaráðuneytið er ekki sérstaklega merkilegt í þessari umræðu nema þegar komið er að allsherjar lögleiðingu og skattheimtu sem myndast á hvíta markaðnum í kjölfarið.

  4. Er þetta ekki gaslighting hjá Bjarna, var frumvarpið ekki um að afglæpavæða vörslu neysluskammta?

    Það er alls ekki það sama og að segja að fíkniefni séu lögleg.

    Það er í áttina, en ekki það sama.

  5. Ég gæti literally opnað telegram og fengið kók, e og kristal sent heim að dyrum á innan við klukkutíma ef mér dytti það í hug, það verður eginlega ekki mikið aðgengilegra en þetta. Fíkniefnin eru löngu búin að vinna fíkniefnastríðið, og fólk er að deyja á hverju einasta ári því það er dauðhrætt við að leita sér aðstoðar. Ég var það svo sannarlega þegar ég var í neyslu. Kannski væru vinkonur mínar ennþá á lífi ef þær hefðu ekki verið trítaðar sem glæpamenn af samfélaginu.

  6. Hver sem vill ná sér í fíkniefni getur gert það á Íslandi í dag. Þessi þráhyggja íhaldsins að sigra fíkniefnin er einfaldlega töpuð og barátta lögreglunnar gerir ekkert nema búa til næsta fíkniefnabarón og meira að segja stundar lögreglan það að leyfa vissum seljendum að selja í friði því þeir klaga keppinautana til lögreglunnar en kjósendur íhaldsins halda að Don Bjarni og fleiri leiðtogar þeirra haldi hér aftur af flóði fíkniefna því æska landsins bara bíður eftir lögleiðingu til að fara í neyslu vegna þess að íhaldið fær að tala svona óáreitt.

    Án gríns við þurfum líklega að bíða eftir að nógu margir kjósendur deyji til að fíkillinn verði sjúklingur en ekki glæpamaður í kerfinu okkar.

  7. Ég er alfarið sammála því að bann á fíkniefnum er tilgangslaust, og ef eitthvað er skaðsamt á svo mörgum sviðum samfélags. En það skiptir máli hvernig það er gert. Þetta er ekki að hringja bjöllu og alltíenu “þetta má!” það þarf infastrúktur í kringum þetta.

    Besta leiðin að mínu mati að taka þetta í skrefum. Byrja á afglæpavæðingu. Og enda með fullri lögleiðingu. Ágætt að taka það fram að svo stöddu að þau einu fíkniefni sem ég hef snert er nikótín, koffín, og áfengi. Bara svo að það sé tekið fram að mín afstaða kemur ekki útfrá því að mig langi að getað farið út í sjoppu til að kaupa mér gras. Boð og bönn á neysluvörum gerir lítið annað en að efla skipulagða starfsemi og setja fíkla í hættu.

    Og þykir mér það fyndið að horfa á þennan mann tjá tig á þennan máta um þetta málefni. Þar sem hann hefur sjálfur verið útúrkókaður niðrí bæ með djammvörðunum sínum. Og þegar hann lendir í veseni út af því að hann er að káfa á konum, lenda djammverðirnir hans í áflogum við dyraverði staðarins. Sem er eitthvað sem ég hef horft uppá gerast, vil sér sérlega taka fram.

  8. Um að gera að vatnsþynna frumvarpið og sjá til þess að auðveldasta réttlætingin fyrir inngripi lögvaldsins í lífi fólks sé enn til staðar. Fasisminn verður að fá að lifa, vaxa og dafna sko.

  9. Um að gera að hafa þetta ólöglegt svo hægt sé að hafa afsökun til að láta lögguna berja á minnihlutahópum.

  10. Fyrst lagt fram á þingi 2014 ef ég man rétt þetta er þá hvað, þriðja eða fjórða ríkisstjórnin sem tekur þetta mál fyrir? Er það ekki nógu varlega að farið? Mig langar bara í 1 spliffu á dag til að halda illskunni í burtu.

Leave a Reply