Sæl(l)

Er “Helvítis fokking fokk!” ekki nóg? Þarf að láta þá heyra það óþvegið? Er þinn innri Indriði að bugast og þú barasta verður að fá smá útrás? Finnst þér eins og allt sem þú segir hverfi út í tómið?

Þú ert á réttum stað, Láttu það flakka, vertu berskjaldaður/skjölduð í smá stund, losaðu þig við þennan óþverra.

​

Hugmyndin er að fólk fái stað til útrásar í þeirri von um að stuðla að betra almennara geðheilbrigði. Erfitt getur reynst að lesa í tónin hjá fólki í bundnu máli en við skulum ganga út frá því að hér séu fáir komnir til að rífast.

​

\—

Ef þig vantar að fá einhvern til að hlusta á þig ekki á opinberum vettvangi þá er alveg sjálfsagt að hafa samband við: u/kassetta, (Hér bætast við fleiri nöfn ef fólk biður sig fram)

Þar með sagt þá viljum við benda á að ef allt stefnir í strand þá er gott ráð að hafa samband við:

Pieta samtökin S: 552-2218.

[Bráðamóttöku geðþjónustu landspítalanns](https://www.landspitali.is/sjuklingar-adstandendur/deildir-og-thjonusta/bradamottaka-gedthjonustu/) s: 543 4050 eða 543 1000

1 comment
  1. Ég sótti um tíma hjá transteyminu á landspítalanum núna í Janúar, og hef ekki ennþá fengið tíma. Var svosem undir það búin að það gæti tekið einhverja mánuði að fá tíma, en síðan á að hefjast sex mánaða ferli, og þetta tekur bara allt saman svo langan tíma.

    Svo er ég að falla í einum áfanga í HÍ, sem gæti gert það að verkum að ég þurfi að vera í heilt ár í viðbót í námi. Er jafnvel að spá í að hætta bara í Háskólanum, fara bara á vinnumarkaðinn. En þá þyrfti ég að flytja út frá foreldrunum, og ég sé mér ekki fært að takast á við leigumarkaðinn eins og stendur. Allavega ekki í bænum.

Leave a Reply