
Félög sem eru á Almannaheillaskrá Skattsins.
[https://www.skatturinn.is/atvinnurekstur/skattskylda/almannaheillaskra-skattfradrattur/#tab2](https://www.skatturinn.is/atvinnurekstur/skattskylda/almannaheillaskra-skattfradrattur/#tab2)
Með hverju mælir fólk? Er að spá í að henda 5-6K á mánuði í góðgerðafélög til að fá skattafrádrátt (og ljúga að sjálfum mér að ég sé góð manneskja) því ég enda alltaf á að skulda skattinum. Get alveg eins gefið þetta í gott málefni og þurft að borga minna (þarf að borga þeim 70K til baka í ár..ugh).
Var að hugsa um Kvennaathvarfið og UN Women en hvar myndi aurinn nýtast best? Eða hvaða félög eru að vinna gott starf en fá ekki jafn mikið og þau ættu að fá?
6 comments
Persónulega styrki ég ekki félög sem gera upp á milli fólks vegna kyns eða kynþáttar, en ég skil alveg að það sé hægt að vera með þannig sjónarmið.
Það eru nú nokkuð mörg ég gef reglulega til unicef og krabbameinsfélagsins einstaka sinnum. Myndi leita eftir einhverju sem þér lýst vel á persónulega en það eru allavega tvö og svo einstaka sinnum gef ég til hjálparstarf kirkjunnar og rauða krossins einsog ég segi mörg félög og um að gera að kynna sér líka árangur af starfi þeirra.
Hjálpar kannski ekki fyrir skattafrádrátt, en þetta tengist: https://www.effectivealtruism.org/
SOS barnaþorpin. Hægt að styrkja barn til 18 ára aldurs. Stór skuldbinding en mjög gefandi.
Björgunarsveitirnar eru alltaf góður kostur, það er frekar augljóst hvert sá peningur fer allavega.
Þessar sveitir hafa í áratugi unnið mjög óeigingjarnt starf og ég byrjaði að styrkja þær meira en bara með að kaupa “kallinn” eftir að ég upplifði að þurfa aðstoð þeirra í óveðri. (þakplötur fuku)
Skoðaðu vel yfirbyggingu góðgerða félagsins og reyndu að hámarka það sem fer til þeirra sem þurfa á því að halda, það er frekar svekkjandi að gefa 1000kr og seinna átta sig á því að 900kr af því fór í laun skrifstofufólks og síma bettlara.
Ef þú skoðar árskýrslu kvennaathvarfsins þá er frekar augljóst að þær hafa ekkert við meiri pening að gera í augnablikinu, hrein eign hjá þeim fór upp um næstum því 200.000.000 kr á milli 2019 og 2020 og stóð í 385.197.486.
Gætir kanski farið í spilakassa frá rauðakrossinum tekið peninginn síðan strax út aftur í seðlum þar sem rauði krossinn er á þessum lista.