
Fyrir fimm árum útfærði Lasþað tilraun sem stóð yfir í nokkra daga þar sem hver notandi gat, á nokkra mínútna fresti, litað einn reit af 1000×1000 mynd. Fjölmörg samfélög komu saman til að taka yfir svæði, skapa sín listaverk, og verja þau frá öðrum hópum. [Hér er kort sem sýnir lokaniðurstöðuna auk þeirra hópa sem stóðu á bak við hitt og þetta.](https://rolandr.github.io/) Norðurlöndin voru öll með sína fána á ýmsum stöðum (okkar er aðeins fyrir neðan fána evrópusambandsins) og svo var líka búið til víkingaskip fyrir ofan breska fánann.
​
Á morgun, klukkan eitt, mun r/place byrja aftur á ný, og mér fyndist flott ef að norðurlöndin kæmu saman og unnu að sameiginlegu verki. Bæði til að sýna samstöðu og einnig vegna þess að samkeppnin við aðra hópa verður hörð, og saman munum við ná betri árangri.
​
Hér á á umræðan sér stað:
r/place_nordicunion
​
Núna er verið að vinna í grunnhugmynd hönnunarinnar. Ríkjandi stefnan er að hafa norðurlandafánanna alla saman efst fyrir miðju (þetta eru nú *norður*löndin) fallega uppsetta einhvernvegin.
​
Það eru ekki margir þar eins en þetta er bara rétt að byrja. Við þurfum fleira fólk og því fljótar sem við náum að sameinast því betra er það. Endilega deilið þessu með öðrum norðurlandahópum til að sem flestir taki þátt.