Kynjaskiptir tímar setji nemendur í óþægilega stöðu

5 comments
  1. Ég skil alveg pælinguna en það eiga miklu fleiri stelpur eftir að falla því þær ná ekki að lyfta X í bekk eða hlaupa 5k undir Y mín.

    Þó það séu margir þættir sem skipta máli þá er testósterón klárlega mjög mikilvægur þáttur þegar það kemur að líkamlegum styrkleika og þoli.

  2. >Töluverð umræða hefur verið um um kynjaskiptar kennslustundir og mismunandi kröfur til einstaklinga eftir kyni þeirra eftir að íþróttakennsla og hæfnismat í íþróttum í Menntaskólanum í Reykjavík

    Finnst þetta vera orðað eins og það er ekki einungis mismunandi kröfur í íþróttakennslu, er það rétt skilið hjá mér? Annars væru kennslustundir væntanlega ekki kynjaskiptar.

    Ef það er rétt, þýðir það þá að MR geri mismunandi kröfur til stelpna og stráka í bóklegum verkefnum? Á hvaða grundvelli og hvernig lýsir sér þessi munur?

    Veit að ég er kannski að gera ráð fyrir ýmsu og jafnvel of miklu, en ég er einfaldlega forvitinn þar sem ég var í menntaskóla sem var ekki skipt eftir kynjum þannig ég skil þetta kerfi ekki alveg.

  3. Þegar ég var í MR fyrir ansi löngu þá voru leikfimitímarnir aðallega kynjaskiptir vegna húsnæðisskorts. Íþróttahúsið er mjög lítið, eldgamalt og líklega friðað. Til að komast í íþróttasalinn þarf að ganga í gegnum búningsklefann og framhjá sturtunum. Í kjallaranum er svo annar búningsklefi fyrir útitímana. Í hverri viku var eitt kynið því úti og hitt inni.
    Sé ekki fyrir mér að þetta verði lagað nema MR fái aðgang að öðru íþróttahúsi.

  4. >Kynjaskipting elur á þeirri hugsjón að stelpur og strákar séu fúndamenntalí mismunandi og því í lagi og eðlilegt að gera mismunandi væntingar til þeirra, sem er ekki satt og talar beint inn í ójafnrétti. 

    Er hún að meina að það eigi ekki að vera nein kynjaskipting neinsstaðar? Konur og karlar eiga að keppa á móti hvort öðru í íþróttum?

    Þessi kynjaumræða hrynur þegar íþróttaumræðan er tekin upp því, afsakið orðbragðið, konur eiga ekki séns í karlmenn í nánast öllum íþróttum. Þær eru örfáar þar sem kynin standa jöfnum fæti.

    Mögulega er ég að misskilja orð hennar engu að síður.

    Annað langar mig að vita þegar hún segir að við vitum að það eru ekki bara tvö kyn. Er búið að sanna með vísindunum að það séu til fleiri kyn? Ég veit ekkert um þennan málaflokk svo ég spyr af áhuga.

Leave a Reply