Hverjir aðrir bjuggu til og/eða vernduðu okkar fána?

23 comments
  1. Henti inn einum og einum pixli til að laga þegar einhver óhreinkaði fánann, var samt meira að byggja í öðrum samfélögum. Íslenski fáninn fékk að vera meira eða minna óáreittur.

  2. Fólk var að rugla í ástar lundunum á milli okkar og Færeyja á tímapunkti, svo ég var eitthvað að laga það, en annars var ekki mikið að vernda á fánanum. Við vorum varin af öllum Norðurlöndunum með því að vera í þessu nordicunion_place dæmi svo enginn fokkaði eh alvarlega í okkur.

    Það var twitch varpari(hvað er streamer?) sem fékk að hanga með Noregi og fékk rosalega vörn vegna þess, þó það var greinilega ráðist á hann mikið.

  3. Ég lagaði hann af og til, þó eins og aðrir hafa sagt, þá vorum við svaka örugg. Ekki mörgum illa við Ísland, og umkringdir stórum frændum þá voru ekki margir að abbast upp á okkur.

    Ég eyddi meirhlutanum af mínum pixlum í að hjálpa með Grænlenska og dillann hans Dillerman. Þó missti ég allan áhugan á þessu eftir fyrstu tvo dagana, þegar mér varð augljóst hvernig mestmegnið af öllu var búið til og varið af bottum, og lítil afdrif af því að hjálpa við nokkuð annað en minniháttarverk innan Norðurlandanna.

  4. Ég lagaði hann af og til, þó eins og aðrir hafa sagt, þá vorum við svaka örugg. Ekki mörgum illa við Ísland, og umkringdir stórum frændum þá voru ekki margir að abbast upp á okkur.

    Ég eyddi meirhlutanum af mínum pixlum í að hjálpa með Grænlenska og dillann hans Dillerman. Þó missti ég allan áhugan á þessu eftir fyrstu tvo dagana, þegar mér varð augljóst hvernig mestmegnið af öllu var búið til og varið af bottum, og lítil afdrif af því að hjálpa við nokkuð annað en minniháttarverk innan Norðurlandanna.

  5. Ég kom inn gula punktinum í goggin og var í mestu við að viðhalda því. Annars leit hann út eins og mörgæs.

  6. Þessi fáni er 32x48px eða í hlutfallinu 2:3. Íslenski fáninn er 18:25. 36x50px væri rétt.

  7. Ég fylgdist með þessu snjókorni verða til og var einn að reyna stöðva það, það gekk alveg ekki neitt..
    Þeir sem bera ábyrgð á því, vitið að mér finnst það asnalegt.

Leave a Reply