
Ég hef verið að hrofa uppá siðkastið á youtube rás sem heitir [HONEST GUIDE](https://www.youtube.com/c/HONESTGUIDE) þar eru tveir félagar að uppræta fólk og fyrirtæki að svindla á túristum í Tékklandi, löglega og ólöglega.
Þegar maður fer erlendis þá er það mjög algengt að sjá og jafnvel lenda í svona turist trap.
Ég fór að hugsa vitið þið um einhver svona svind sem stunduð eru hér á íslandi í garð túrista, lögleg eða ólögleg.
Væri gaman að heyra hvar og hvernig þetta er gert hér á Íslandi þetta gæti kannski orðið til þess að svindl geti verið uppræt.
13 comments
Bláa lónið er t.d ríkisstyrkt tourist-trap
Oft þá kosta hlutir einfaldlega of mikið, en ég held að það sé voða lítið um svona beina óhreinskilni. 10k fyrir einhverja drasl máltíð í miðbænum eða út á landi er hálfgert scam. Ferðapakkarnir sem eru seldir útlendingum eiga líka til með að vera mjög overpriced.
En ég held að kúltúrinn okkar sé mjög gjarn að uppræta hluti sem eru eins skammarlausir og í austur evrópulöndunum. Gætu verið að nokkrar “direct to consumer” starfsemir, eins og í gegnum instagram auglýsingar, séu algjört svindl. En almennt, ef að einhver svona bisnis myndi poppa upp á augljósann hátt þá myndi alþýðann ekki taka vel í það.
Við erum samt bara ansi sátt við að túrista markaðsetningar séu ansi dýrar held ég.
Eina svindlið sem ég hef orðið vitni af á íslandi var maður að ganga um með miða með einhverri sorgarsögu að reyna að fá peninga frá fólki. Já og svo einu sinni þegar við vorum á bensínstöð þá kom öldruð Austur-Evrópsk kona með “gullhring” sem hún var að reyna að selja vinnufélaga mínum á víst sportprís.
Aldrei séð neitt beint að túristum. Er ekki verðlagningin á íslandi bara raunverulega scamið?
það fór í fréttirnar um árið þegar einn gistihúsaeigandi sagði fólki að kranavatnið hjá sér væri ódrykkjarhæft og seldi það í flöskum.
þeim bisness var lokað held ég alveg örugglega.
Fyrirtæki að mismuna ferðamönnum með því að hafa 40-60% afslátt ef þú skráir þig á vinalista fyrirtækisins með kennitölu.
Gera þetta til að geta kúgað út peninga af ferðamönnum meðan íslendingar geta notað hlutina á verði sem “meikar einhvern sense”.
Bláa lónið og Icewear eru tvö fyrirtæki sem ég veit stunda þetta.
Ég hef oftar en einusinni greitt lægra verð fyrir hvalaskoðun, á fleiri stöðum en einum fyrir það eitt að tala íslensku (starfsfólkið sagði það, kallaði það íslenska afsláttinn). Ég gerði það síðan að reglu að fara með erlendum vinum mínum, bað þau um að hafa hljótt á meðan ég borgaði og reddaði þeim alltaf ódýrari hvalaskoðun. Fór síðan ekkert með þeim því að ég hef séð hval einusinni og það var alveg nóg fyrir mig.
Ég hef gengið framhjá hóp af túristum með íslenskum guide sem voru í einhverskonar “álfasteina göngu”.
Nógu slæmt finnst mér það almennt sem túrista concept, en öllu verra fannst mér þetta því að á þessum slóðum var enginn fótur fyrir þjóðtrú um álfa í þeim steinum. Bara einhverjir stórir steinar sem borgin sá um að staðsetja þarna til skrauts.
Selja þeim season all í staðinn fyrir fíkniefni
Íslenskar vegasjoppur.
Selja lélegar og lággæða veitingar á uppsprengdu verði sem virðist hækka á hverju ári.
Þó svo að Íslendingar þurfa að borga sama verð, þá varð þetta svona eftir að túristum fór fjölgandi. Verðið hækkaði og gæðin minnkuðu.
Allar bílaleigur.
Kranavatn í flöskum í Bónus. Óáfengur bjór í verslunum þar sem alkahólleysið er ekki tekið fram.
Óáfengum bjór er stillt upp í kjörbúðum og sjoppum gagngert til að láta það líta það líta út fyrir að um venjulegan bjór sé að ræða.
Kannski ekki scam en ef maður ætlar að virða fyrir sér Vestrahorn að þá ætlast einhver kaffistofa þarna til þess að maður greiði næstum 1000kr á haus til að “skoða víkingaþorpið”. Sem sagt þeir koma hlaupandi út á eftir manni froðufellandi fyrir það eitt að ætla að labba í átt að fjallinu. Þeir rukka ekki fyrir bílastæðið en reyna að segja að þetta gjald sé útaf þessum bölvuðu víkingaskálum sem aldrei voru notaðir í neinni helv bíómynd og enginn vill sjá. Ég bókataflega stóð uppá hól við bílastæðin til að horfa útá hafið og það kom einhver hlaupandi út og byrjaði að veifa viskustykki fyrir andlitið á mér svo ég gæti alveg örugglega ekki notið náttúrunnar án þess að borga þeim.
Það er “freedom to roam” á Íslandi. Ég skil ekki að þau komist upp með þetta.
Þetta lið má fokka sér.