Tilraun til að takmarka tjáningarfrelsi blaðamanna – Kjarninn

2 comments
  1. >Í grein­ar­gerð aðstoð­ar­sak­sókn­ara lög­reglu­emb­ætt­is­ins kom hins vegar fram að lög­regla þarf ekki rök­studdan grun um meint brot til að rann­sókn geti haf­ist og kalla fólk til yfir­heyrslu sem sak­born­inga. Aðeins „ein­faldan grun“ þurfi til.

    Er í alvöru verið að nota þessa gölnu nýju reglugerð sem átti að nota til að stöðva “skipulagða glæpastarfsemi”, eða augljóslega bara sett í þann búning, til að hefta fjölmiðlafrelsi??

    https://www.visir.is/g/20212118412d

    Ég vona að það sé eitthvað að fara framhjá mér hérna, annars er auðvitað sami flokkurinn og alltaf rauði þráðurinn í gegnum allt þetta mál.

  2. Löggan er ekki vinur ykkar.

    Ef þú býrð enn við þá trú að Löggan séu einhverskonar vinir okkar, séu “þjónar” eða “verðir” laga og reglu, og aðeins glæpamenn þurfi að óttast lögregluna, þá öfunda ég þig. Það er bara hægt að halda í þá mýtu þangað til maður lendir í valdníðslunni, og reynir að leita réttar síns – og eftir það er fallegi glansinn horfin af Íslensku samfélagi og það sem áður var sakleysisleg smábæjarstemming er núna orðin óþolandi meðvirkni samfélagsins með broti gagnvart þér eða þínum.

    Það lagast ekki.

Leave a Reply