Stór hluti þeirra sem fengu að kaupa í Íslandsbanka á afslætti eru ekki lengur á meðal hluthafa

8 comments
  1. Ég var einn af þeim sem í upphafi réttlæti/varði söluna á þessum hlut í Íslandsbanka og ég er enn fylgjandi því að selja bankann, ríkið á ekki að eiga 2/3 af stóru viðskiptabönkunum og þessir fjármunir nýtast mun betur í ríkissjóð heldur en sem einhver hlutabréf sem kannski borga sig upp á 30-50 árum.

    Að því sögðu þá hafa komið í ljós upplýsingar sem ég er virkilega ósáttur með.

    * Hvaða prump upphæðir fengu menn að kaupa fyrir? Lægsta upphæð sem ég hef séð er 1,1 milljón sem er minna en ég hefði getað keypt fyrir, í raun hefði ég getað keypt fyrir margfalda þá upphæð og ég er bara meðal-Jón úti í bæ.
    * Hvernig var eiginlega staðið að því að velja “hæfa” fjárfesta? Voru þessir ráðgjafar bara að hringja í vini sína?
    * 700 milljónir fyrir að selja bréf sem allir vildu kaupa og það var umframeftirspurn? 700 fokking milljónir, hvaða rugl er það?

    Það að selja Íslandsbanka er gott mál og skilar tugum milljarða í þjóðarbúið á einu bretti (takk SDG, sagan mun fara betur með hann heldur en við gerum núna), en hvernig staðið var að sölunni er til skammar og ég vil sjá hausa fjúka.

  2. Spáið í því, lífeyrissjóðirnir okkar fengu ekki að kaupa það sem þeir báðu um en þurftu í stað þess að kaupa bankann okkar í endursölu af “fagfjárfestum”.

  3. Það sem að mér finnst mest spes er að Framsókn virðist vera tilbúin að sprengja ríkisstjórnina útaf þessu máli. Og ég sé VG ekki stoppa það.

    Þeir hafa ekki fengið nægilega stóran hlut í þessari afsláttar útdeilingu á eign þjóðarinnar til valdra vina þeirra sem að ráða.

    Það er í fínu lagi að selja bankann, en þetta að selja til útvaldra sem að voru valdir á mjög óljósan hátt eftir formúlu sem enginn vill segja frá eða útskýra og svo selt þetta með afslætti þegar eftirspurnin var meiri en framboðið. Það heldur ekkert í þessu máli vatni.

    Held að BB gæti hafa keyrt yfir sig í einkavæðingarspillingunni í þetta skiptið. Sérstaklega þegar Sigurður Ingi er að reyna að bjarga sér frá því að hafa haft frammi rasísk ummæli um ágætlega háttsetta konu í Sjálfstæðisflokkinum. Og Katrín Jakobs er að reyna að sitja á sínu fólki áður en allur VG flokkurinn sýður uppúr út um allt.

    Hann er ekki að fara að fá samheldnisvegginn sem að hann þarf frá ríkisstjórninni akkúrat núna. Það ein manneskja sem að hefur tjáð sig sem að ég myndi ekki vilja fá upp á móti mér og það er Lilja Alfreðs. Og hún er verulega pirruð sá maður.

    Vona að Bjarni eigi slatta að kökuuppskriftum, þetta er að fara að kalla á bakarí hjá honum.

  4. Af hverju treystu svona margir þessum sí-spillingar-flækta manni, og þessum flokk hans, til að standa heiðarlega að þessu.

    Það er allt of seint að vera vitur eftirá þegar skaðinn er skeður, og ég man alveg heiftina í ykkur þegar við hin mótmæltum og benntum og skort á trausti, algeran asa, fáranlega tímasetningu, og allt annað.

    Þetta var fyrirséð. Vonandi lærir einhver af þessu og hættir að treysta raðlygurum. Ólíklegt samt ef ég tek mark á fyrri reynslu minni.

  5. Ætli sjallar ræði þetta á milli sín sem skandal eða gefi hvor öðrum fimmur fyrir þessa snilld?

    Ég held það séu fimmur út um allan Garðabæ þessu dagana.

Leave a Reply