Tóku frétt úr birtingu vegna rasískra viðbragða lesenda

6 comments
  1. Maður einhvernveginn fer alltaf að ímynda sér að svonalagað sé ekki til á Íslandi, eða mjög sjaldgæft, þangað til eitthvað kippir manni niður á jörðina. Ég man hvað ég var hissa þegar ég lenti í einum hérna á reddit sem hélt því skýlaust fram að það ætti aldrei að vera neitt nema hvítt fólk á alþingi Íslendinga.

    Frekar kaldhæðnislegt líka að oft kvartar þetta sama fólk yfir því að ekki sé pláss fyrir mismunandi skoðanir í umræðunni, en finnst svo sjálfum greinilega ekki vera pláss fyrir mismunandi húðliti í tilverunni.

    Svo er áhugavert að ekkert af fólkinu sem stekkur til að verja “ungar konur í pólitík” þegar Áslaug Arna er gagnrýndi fyrir störf sýn virðist hafa lítinn áhuga á að verja Lenyu, sem þó er bæði töluvert yngri og verður fyrir töluvert meira aðkasti.

  2. Mér þætti mjög áhugavert að sjá þessar athugasemdir, og hversu margar þeirra séu raunverulega rasískar. Annars sé ég ekki hvers vegna að fjarlægja fréttirnar — það er alltaf best að leyfa rasistum að dæma sig með sínum eigin orðum frekar en að sópa umræðunni undir teppi.

  3. Kommentakerfi allra fréttamiðla íslands eru stútfull af mestu veruleikafirrtu þöngulhausum landsins

Leave a Reply