Hvernig geri ég svona á klakanum?

6 comments
  1. langar að gera bæinn betri. Slétt gras er jafn fallegt og slétt grá hús í úthverfi sem hönnuð eru fyrir lífeyrissjóði frekar en fólk. Langar ekki að spreða lúpínu útum allt eða eitthvað álíka, er til eitthvað íslenskt sem hægt er að nota?

  2. Hef oft íhugað að planta eins og birki-, aspar-, eða reynigræðlingum í skjóli nætur á þessum milljón umferðareyjum í bænum.

  3. Er til í þetta, væri sjálfur til að sá loðvíði eða eitthvað sambærilegu um bæinn minn. Hvar er hægt að kaupa fræ í miklu magni?

  4. Ef þú ætlar að fara að stunda skærugarðyrkju þá máttu endilega pæla í því að planta líka nytjajurtum í bland við falleg blóm.
    Skessujurt, sól- og rifsberjarunnar, spánarkerfill og graslaukur geta t.d. vaxið án mikillar umhirðu og eiginlega hvar sem er á íslandi.

Leave a Reply