Hatursorðræða umhugsunarefni fyrir stjórnmálamenn

1 comment
  1. Þetta er mjög ómerkileg frétt í sjálfu sér en það er eitthvað við þetta sem truflar mig. Þá sérstaklega þessi tilvitnun:

    > „Ég er ekki algjörlega með svörin við því hvaða leiðir eru bestar í því. En ég held að það sé mjög mikilvægt einmitt að opna þessa umræðu og ræða þetta. Svona orðræða á auðvitað ekki að líðast í samfélaginu.“

    Þessi frétt tengist ummæli sem hafa fengið að fljóta í sambandi við Gabríel, strokufangann. Það sem ég velti fyrir mér er hvar eru mörkin milli hatursorðræðu og málfrelsi? Og hver á að vera lyklavörður netsins?

    Ef hatursorðræða er vandamál á Rúv þá finnst mér eins og Rúv megi díla við það, frekar en ríkisstjórnin.

    Ég er farinn að sjá fleiri hömlur og hindranir á netinu. Áðan var ég að pósta á facebook, í hópnum Útlendingar á Íslandi, og ég var að segja frá reynslu fyrrverandi á flugvöllum – en hún er sköllótt og notar slæðu/buff og er þ.al. alltaf stoppuð. Ég notaði engin blótsyrði en sagði “she is often mistaken for being a Muslim” og “if your husband has a great doctor like you say then I’d love to kidnap him” og mér var tilkynnt að commentið fer gegn reglum Facebooks og er því ekki sjáanlegt neinum.

    Hvað eiga stjórnmálamenn að geta gert til þess að draga úr mismunun, er það að vakta netið 24/7 með keyloggers til góma hættulega einstaklinga sem eru virkir í athugasemdum?

    Ég veit ekki, allt þetta frá voðalega ómerkilega og saklausa grein. En ég sé rauða fána.

Leave a Reply