[https://www.visir.is/g/20222252494d/lodaskiptin-handsolud-og-bjorgunarmidstod-fram-undan](https://www.visir.is/g/20222252494d/lodaskiptin-handsolud-og-bjorgunarmidstod-fram-undan)

Mér finnst þetta fáránlegt. Þetta er ekki rétti staðurinn fyrir Landhelgisgæsluna, Tollgæsluna og Slökkviliðið… Lögreglan og Landsbjörg þyrftu sennilega líka betri staðsetningu því það er alltaf svo þétt umferð þarna á anna tímum

Verst er að þetta er svo mikil vanvirðing við fólkið sem starfar þarna sem vissi ekki einu sinni af þessu og vanvirðing við þá sem hafa lent í geðrænum erfiðleikum og við þeirra aðstandendur, það er nú þegar húsnæðisskortur hvað verður eiginlega um þessa þjónustu sem þarna er veitt?

Þetta svæði ætti líka frekar að vera notað fyrir klepps spítala þannig fólkið þar þurfi ekki að vera að fara út um allan bæ til að fá tengda þjónustu.

Það að byggja íbúðir þétt sunnan við borgarspítala er ekkert vit í heldur.

Þessi borgarstjórn er alveg glötuð, ekki nóg með að það sé allt í rugli á íbúðamarkaði heldur er líka svona rugl í gangi.

Ég vona að þessi borgarstjórn fari frá í komandi borgarstjórnarkosningum og mun gera allt sem ég get til að svo verði.

2 comments
  1. A) Borgarstjórnin valdi ekki þennanstað fyrir þetta björgunarsetur, dómsmálaráðherra gerði það, þessvegna er hann þarna. Ríkið rekur kleppsspítala og er ábyrgt fyrir þjónustustiginu þar, Willum er heilbrigðisráðherra.

    B) Afhverju er asnalegt að þétta byggð fyrir aftan borgarspítalann?

    C) Það er ekki verið að klepp eða leggja hann niður, það er bara verið að byggja hús við hliðina á honum. Skil ekki hvaða áhrif það ætti að hafa á starfsemi spítalans.

    D) Hvernig tengist þetta borgarstjórninni. Sem er IMO besta borgarstjórn sem Reykjavík hefur nokkurntíman haft. Reykjavík er fallegri, hreinni, betur rekin og sanngjarnari en núna en hún hefur verið áður. Skil ekki þetta endalausa væl yfir Degi, hann er geggjaður borgarstjóri.

  2. Ég er persónulega mjög spenntur að sjá hvernig þau skipuleggja uppbyggingu þarna við Borgarspítalann. Huggulegur staður.

Leave a Reply