“Ríkisstjórnin fallin samkvæmt könnun”

10 comments
  1. Finst alltaf gaman að sjá niðurstöður úr könnunum og tek sjálfur þátt í þeim hjá flestum af þessum könnunar miðlurum, hinsvegar vantar upplýsingar hér, hvað tóku margir þátt
    hvað voru margir spurðir? hver eru skekkju mörkin?

    Einnig veit ég til þess að innan allavega eins flokks hefur verið rætt að þegar þau svara svona könnun ættu þau að ljúga um hvað þau kusu síðast og hvað þau ætla að kjósa næst svo það lýti út fyrir að það sé brottfall frá einum flokk yfir til þeirra.

  2. Mátti svo sem búast við þessu, það sem er öðruvísi við þetta kjörtímabil er að það er ekkert Covid til að taka reglulega athyglina af öðrum verkum/klúðrum stjórnarinnar. Kannski stjórnin ætti að endurreisa þríeykið og byrja að gefa út smittölur aftur

  3. Skiptir engu máli. Fólk segir allskonar í svona könnunum og notar þær til að tjá skoðanir á málum líðandi stundar en fæstir af þessum sem segjast ekki lengur styðja ríkisstjórnina myndu Kjósa fyrir nýrri stjórn í alvöru kosningum.

  4. Kemur mér ekki á óvart, en þetta er mjög týpískt óánægjufylgissveifla svo það á alveg eftir að koma í ljós hversu margir detta svo aftur í sömu gömlu venjuna og kjósa bara sinn flokk. Hugsa að einhverjir sem kusu stjórnarflokkana síðast munu ekki kjósa þá aftur í næstu kosningum eftir þetta, en hversu margir þeir eru á eftir að koma í ljós. Það verða allavega færri en sýnist af þessari könnum.

  5. Það er ástæða til þess að halda að þessi hópur sem Prósent ræðir við sé ekki mjög lýsandi fyrir kjósendur í heildina.

    Rétt rúmlega viku fyrir kosningarnar voru [niðurstöður þeirra](https://prosent.is/kosningar-2021-konnun-prosents-fyrir-frettabladid/) að gefa til kynna mun lægra fylgi fyrir umrædda flokka sem “misstu” mest fylgi m.v. niðurstöðu kosninganna skv. fréttinni:

    Sjálfstæðisflokkurinn 21.3% í þeirra fyrri könnun en 24.4% í kosningum. Vanmetnir um 3.1%.

    Framsóknarflokkurinn 12.6% í þeirra fyrri könnun en 17.3% í kosningum. Vanmetnir um 4.7%.

    Vinstri grænir 10.0% í þeirra fyrri könnun en 12.6% í kosningum. Vanmetnir um 2.6%

    Það væri miklu, miklu meira vit í því að bera saman niðurstöður **milli kannananna** fyrst það er um svo til sama hóp að ræða (fjölgar um 500).

    Þá ályktum við að Sjálfstæðisflokkurinn hefur misst 3.4%, Framsókn 0.2%, og Vinstri grænir 0.4% *meðal þessa hóps sem Prósent er með*.

    Ekki beint jafn fréttnæmt – en miklu skiljanlegri niðurstaða þar sem það er leiðtogi Sjálfstæðisflokksins sem er fjármálaráðherra og sveik þjóðina enn og aftur. Það væri því ótrúlegt ef að hinir tveir flokkarnir í ríkisstjórninni myndu samtals missa talsvert meira fylgi við þetta en Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur–og það er eins og ég fór yfir hér að ofan rík ástæða til að halda að sú sé ekki raunin.

  6. það er ekkert sem heitir ríkisstjórn og það er ekkert sem fellur í könnunum.

    fólk virðist halda að hlutirnir séu eins og það vill frekar en eins og þeir eru.

  7. Hvernig í ósköpunum ætti hún líka ekki að falla eftir það sem á undan er gengið?

    Ég neita að trúa því að Íslendingar ætli bara samt að kjósa Sjálfstæðisflokkinn til valda, eða flokka sem ætla augljóslega að leiða hann til valda.

    Hann er ekki einu sinni alvöru hægriflokkur, bara sérhagsmuna pilsfaldakapítalisma spillingarflokkur. Hvernig er mögulega hægt að styðja hann?

    Og hvernig er hægt að falla fyrir þessu ‘aw shucks, við erum bara svo næs, og nennirðu nokkuð í alvöru að pæla í pólitík? Er ekki bara best að sleppa því að hugsa um það og leyfa okkur að ráða?’ kjaftæðinu í Framsókn?

    Og trúir því einhver lengur að VG sé eitthvað skárri? Full samstaða með Bjarna Benediktssyni. Það er frá flokknum sem kynnti sig í kosningunum 2017 sem skýrasta mótvægið við Sjálfstæðisflokknum, sem þau eru núna alfarið samvaxin við. Þetta er basically “Viltu friða samviskuna með umhverfismálin eða jafnréttismál, en samt í raun breyta engu? Þá erum við málið fyrir þig.”

    Ég er bara komin með alveg nóg af þessu rugli. Við hljótum að geta valið betur en þetta. Jafnvel þó það sé fólk sem við erum ekki alfarið sammála um allt, þá bara hljótum við að vera komin á þann stað að nokkurn vegin hvað sem er annað væri skárra. Bara einhver smá heiðarleiki.

Leave a Reply